Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og 3. þingmaður Suðurkjördæmis segir ólíðandi hversu slæmt ástandið skuli vera í samgöngumálum Vestmannaeyja. �??�?etta er verulega erfið staða sem Eyjamenn glíma við í samgöngumálum. Vissulega er hægt að gera betur og það er hlutverk okkar Alþingismanna að leggja okkar af mörkum. �?að er auðvitað algerlega ólíðandi að ástandið skuli vera orðið svo slæmt eins og raun ber vitni. �?að að öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu, stóraukinn kostnaður barnafjölskyldna vegna ástandsins sem og áhrifum þess á atvinnulífið, er auðvitað ólíðandi. �?ingmenn Suðurkjördæmi, bera hag Vestmannaeyinga fyrir brjósti. Við gerum það sem við getum en það er ekki alltaf nóg. Kjaradeilur sem þessar eru erfiðar og flóknar. Deilendur verða að tala saman, vera lausnamiðaðir og vonandi finna þeir ásættanlega leið sem allra fyrst,�?? segir Silja Dögg í svari við fyrirspurn Eyjafrétta.
Bréf Eyjafrétta til allra þingmanna í Suðurkjördæmi má lesa hér að neðan:
Kæri þingmannahópur Sunnlendinga
Eins og þið kannski vitið, er verkfall háseta, bátsmanna og þerna hafið um borð í Herjólfi. Verkfallið hefur nú staðið í tæpa viku og íbúar Vestmanneyja þegar farnir að finna illilega fyrir verkfallsaðgerðum, sem halda samfélaginu hér í heljargreipum. Skipið siglir nú aðeins eina ferð á virkum dögum, enga á laugardögum og sunnudögum. �?fært hefur verið í Landeyjahöfn undanfarið og verður fram í næstu viku. Verkfallið bitnar einkum á íbúum Vestmannaeyja, þeim sem síst mega við því, barnafjölskyldum og þeim sem þurfa að sækja læknisþjónustu til höfuðborgarinnar. Sem dæmi má nefna íþróttahópa sem annars færu í dagsferð um helgi, þurfa nú að fá frí tvo daga í skóla, gista í þrjár nætur með tilheyrandi aukakostnaði foreldra. Dæmi eru um að þeir sem þurfi að sækja læknisþjónustu, þurfi frí úr vinnu í þrjá daga.
Eyjafréttir leita eftir viðbrögðum þingmanna kjördæmisins við þessari stöðu sem upp er komin og hvernig þú ætlar að beita þér fyrir því að samgöngumálum verði komið aftur í viðunandi horf. �?að bendir nefnilega allt til þess að deiluaðilar séu ekkert að nálgast í viðræðum, sem reyndar hafa ekki verið í gangi síðan í síðustu viku. Deiluaðilar hafa ekki séð ástæðu til að funda, svo mikið ber á milli. Er þá ekki komin rík ástæða fyrir hið opinbera að grípa inn í?