�?að er komið að þeim tíma árs þar sem kvenfélagskonur baka, en á föstudaginn er árlegt 1. des. kaffið þeirra. �?að er nefnilega algjör mýta að þessar fórnfúsu konur í kvenfélaginu séu alltaf bakandi, en það er einu sinni á ári sem þær baka í þágu félagsins og þær sem ekki hafa áhuga á að baka geta sennilega fengið einhver önnur verkefni.
Saga Líknar kvenfélags á sér 108 ára sögu og þegar rýnt er í bækur og blöð sem segja sögu þessa félags, hafa margir kvenskörungarnir tekið þátt í starfinu og mörgu komið í verk. Aðstoðin sem kvenfélagið hefur veitt í gegnum árin er ekki hægt að koma niður á blað með orðum.
Starfsemi kvenfélagsins er fjölbreytt og skemmtileg
�?egar félagið var stofnað var lífið annað og erfiðara. Upphafleg stefnumál þess voru að líkna og hlynna að bágstöddum sjúklingum, markmiðin hafa ekki mikið breyst en þróast.
Starfsemin hefur farið um víðan völl í gegnum árin þó megin stefnumál félagsins séu alltaf að láta gott af sér leiða til stofnanna sem þurfa á að halda og eintaklinga sem eiga um sárt að binda. Líknarkonur hafa einnig verið virkar í menningarlífinu, héldu í mörg ár leiksýningar, tóku þátt í þjóðhátíð Vestmannaeyja stóðu fyrir karnivali og fleira.
Basarinn þeirra og 1. des. kaffið er fyrir löngu orðið þekkt og hafa þær síðustu ár fyllt Höllina í árlega kaffinu, enda ekki furða, starf þeirra er góðmennskan út í eitt og þarna fá fleiri tækifæri til að láta gott af sér leiða. Árlega standa þær fyrir vorsöfnun og merkjasölu í maí, en þetta hvoru tveggja eru fjáraflanir til að geta rétt hjálparhönd. �?ær hafa síðan séð síðustu ár um kaffi Vinnslustöðvarinnar á sumardaginn fyrsta og svo áður nefndan basar og 1. des. kaffi.
�?ær reyna líka að huga að innra starfinu og fóru í ár í dagsferð út á land og óvissuferð innanbæjar, en sögur segja að það sé alltaf gaman þegar kvenfélagskonur hittast.
Styrkir fyrir 107 milljónir frá 2006
�?etta fórnfúsa starf sem kvenfélagskonurnar vinna í þágu líknar og velferðarmála almennings er magnað. �?ær hafa árokað miklu í gegnum árin og sagði núverandi formaður Edda �?lafsdóttir mér að frá árinu 2006 hafi félagið styrkt einstaklinga og stofnanir eins og HSU, Hraunbúðir, Sambýlið og fleiri um 107 milljónir, talan segir allt sem segja þarf!
Gæti varla gengið nema fyrir velunnara í bæjarfélaginu
Anna Huld Sigurðardóttir hjúkrunardeildarstjóri hjá HSU í Vestmannaeyjum sagði að stofnunin væri sú sem hún er vegna velunnara í bænum. �??Starfsemi stofnunarinnar gæti varla gengið nema fyrir tilstuðlan velunnara í bæjarfélaginu. �?ær gjafir sem kvenfélagið Líkn hefur fært spítalanum í gegnum árin hafa verið ómetanlegar. Bara á þessu ári hafa Líknarkonur gefið mikilvæg tæki, fyrir bæði sjúkradeildina og rannsókn, fyrir meira en 10 milljónir. Og til samanburðar fær öll Heilbrigðisstofnun Suðurlands tæpar 8 milljónir til tækjakaupa frá ríkinu fyrir þetta ár,�?? sagði Anna Huld.
Starfsfólk og sjúklingar njóta því góðs af þeirri óeigingjörnu vinnu sem Líknarkonur leggja á sig til að bæta öryggi okkar Eyjamanna. Anna Huld gekk í félagið í vor og sagði aðalástæðuna vera málefnin sem þær taka fyrir.
�??�?g tel það forréttindi að fá að tilheyra svona flottum hópi kvenna sem vinnur af alúð og hlýju fyrir góð málefni, �??sagði Anna Huld að lokum.
Eigum við að láta gott af okkur leiða?
Ef konur vilja láta gott af sér leiða þá er alltaf opið fyrir umsóknir hjá kvenfélaginu Líkn. �?að var miklu algengara hér á árum áður að konur gengu í kvenfélag, þá vildu flestar konur láta gott af sér leiða til bágstaddra og tækifæri til þess var í gegnum kvenfélag. �?að er líklegast mjög góð tilfining að taka þátt í starfi sem er mannbætandi fyrir marga og hreinlega bjargar mannslífum. Að þessu sögðu mun ég að öllum líkindum senda inn umsókn í kvenfélagið, því ég vill láta gott af mér leiða. �?að er allavega hægt að gera sér glaðan dag og mæta í kaffið eða kaupa af þeim jólakortin sem nú eru til sölu.