Íslandsbanki býður fulltrúum fyrirtækja í Vestmannaeyjum til fundar um efnahagsmál, þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12.00 til 13.15 í Eldheimum.
Ingólfur Bender forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka kynnir nýútkomna �?jóðhagsspá Greiningar. Alfred Halldórsson framkvæmdastjóri Renniverkstæðisins Háin ehf.
kynnir starfsemi fyrirtækisins.
Fundurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis. Húsið verður opnað kl. 11.45 og boðið upp á léttan hádegisverð.
Vinsamlegast skráðu þig fyrir kl. 15.00, mánudaginn 16. nóvember
með því að senda tölvupóst á sigurdur.ingason@islandsbanki.is
eða með því að hringja í síma 440 3015.