Opinn íbúafundur um framtíðarþróun ferðamála á Suðurlandi
DCIM100MEDIAYUN00052.jpg
\DCIM\100MEDIA\YUN00052.jpg
Í dag kl. 17.00 verður opinn íbúafundur í nýju húsnæði �?ekkingaseturs Vestmannaeyja. �?ar gefst íbúum og hagaðilum færi á að koma hugleiðingum sínum á framfæri og eiga samtal um ferðaþjónustuna, en vinna við stefnumótun og framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi hefur verið í gangi frá síðasta hausti.
Hvað er áfangastaðaáætlun DMP fyrir Suðurland?
Áfangastaðaáætlun DMP (destination management plan) er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. Með áfangastaðaáætlun fyrir Suðurland verður til heildræn stefna sem lýtur að ferðaþjónustunni sem atvinnugrein, sveitarfélögum, íbúum, umhverfi sem og samfélaginu í heild seinni. �?ar er m.a. fjallað um kortlagningu á þjónustu á svæðinu, skipulagning á upplýsingaveitu til ferðamanna, forgangsröðun í uppbyggingu áfangastaða, hversu mikinn fjölda getur áfangastaðurinn borið á hverjum tíma, áætlun um tekjuöflun og gjaldtöku, áætlanir á sviði gæða-, umhverfis- og öryggismála osfrv.
Hvaða máli skiptir þátttaka í slíkri stefnumótun fyrir Vestmannaeyjar?
Áfangastaðaáætlunin er fyrst og fremst hugsuð til að ná fram heildstæðri stefnu í ferðaþjónustu fyrir svæðið, þannig er með starfinu tengdir saman hagaðilar ferðaþjónustu og raddir þeirra sem þjónustuna snerta fá að heyrast. Með vinnunni er verið að skerpa á því hvar við erum að standa okkur vel, hvað þarf að bæta og hvaða leiðir er hægt að fara til að ná fram þeim markmiðum sem við setjum okkur. Með þessari vinnu er verið að tryggja að svæðin séu að róa í sömu átt, þrátt fyrir að ógnanir og tækifæri svæðanna séu ólík þá verður til aukinn skilningur á sérstöðu svæðanna og með þessari vinnu fá yfirvöld frá einni röddu svart á hvítu hvaða heildrænu stefnu svæðin vilja taka í sameiningu og hvaða þætti þarf að bæta og breyta til að við komumst á réttan kjöl. Niðurstöðurnar munu koma ríki, sveitarfélögum og rekstraraðilum í ferðaþjónustu vel þar sem með vinnunni verður skapaður grundvöllur og væntanlega nokkurs konar leiðarvísir til sóknar í ferðaþjónustu fyrir framtíðina.
Ferðaþjónustan eykur lífsgæði íbúa og bætir búsetuskilyrði
Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein í Vestmannaeyjum þrátt fyrir að samgöngumál hafi verið okkur mikill þröskuldur í möguleikum á auknum vexti. Með tilkomu Landeyjahafnar hafa tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki vaxið verulega. Ferðaþjónustan er mikilvæg stoð í okkar samfélagi m.a. þar sem sú þjónusta sem verið er að veita að mörgu leyti ferðamönnum hefur mikil áhrif á lífsgæði heimamanna. T.d. hefur úrval veitingastaða aukist verulega sem við heimamenn fáum að njóta og möguleikum í afþreyingu fjölgar. Lykilatriðið er þó það að ferðaþjónustan hefur í för með sér fjölbreyttara atvinnulíf þar sem atvinnutækifæri verða fleiri og eggjunum í körfunni okkar fjölgar en fjölbreytt atvinnulíf er forsenda blómlegrar byggðar í Vestmannaeyjum til framtíðar og því mikilvægt að hlúa vel að þeim sóknartækifærum sem felast í ferðaþjónustunni.
Sóknartækifæri í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum
Við sjáum fram á spennandi hluti í ferðaþjónustunni og gríðarleg tækifæri m.a. með Beluga hvalaverkefninu sem Merlin entertainment, eitt stærsta nafn í skemmtanaiðnaðinum, er komið á fremsta hlunn með hér í Vestmannaeyjum. Með bættum samgöngum og þá sérstaklega með nýrri ferju sem von er á næsta sumar er það mín einlæg von að ferðaþjónustunni vaxi áfram fiskur um hrygg og við náum að lengja smátt og smátt ferðaþjónustutímabilið og auka stöðugleikann þannig að fyrirtæki í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum geti miðað rekstur sinn í auknum mæli að heilsársgrundvelli.
Ef þú ert áhugasöm/-samur um ferðaþjónustu eða málefni þeim tengdum endilega kíktu við kl. 17.00 í nýju húsnæði �?ekkingaseturs Vestmannaeyja
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Fulltrúi í vinnuhóp um áfangastaðaáætlun DMP á Suðurlandi

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.