kvöld, fimmtudag, klukkan 20:00 heldur þjóðhátíðarnefnd opinn borgarafund í Höllinni um hátíðina. Í auglýsingu um fundinn segir að nefndin telji brýnt að koma sínum sjónarmiðum á framfæri um framtíð og framkvæmd þjóðhátíðar en auk þess verði dagskrá hátíðarinnar í ár kynnt. Í lok fundar verða svo leyfðar fyrirspurnir úr sal þar sem bæjarbúar geta komið með athugasemdir um það sem betur má fara í framkvæmd þjóðhátíðarinnar.