Í upphafi næsta árs mun örbrugghúsið The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum fá ný bruggtæki til framleiðslu sinnar og um leið mun framleiðslugeta þess nær sexfaldast. �?á vinna forsvarsmenn fyrirtækisins að opnun nýs ölhúss þar sem gestum og gangandi mun gefast kostur á að kynnast afurðunum.
Jóhann �?lafur Guðmundsson er bruggari fyrirtækisins og einn af forsprökkum þess.
�??Við tókum ákvörðun um að fjárfesta í þessum tækjum vegna þess að eftirspurnin eftir framleiðslunni hjá okkur hefur vaxið gríðarlega. Með nýju tækjunum gefst okkur einnig kostur á að setja bjórinn á flöskur og með því koma honum í sölu á börum og veitingahúsum sem ekki eru með bjórdælur, en hingað til höfum við aðeins selt framleiðsluna í kútum.�??
Bræður byrja að brugga
Jóhann segist ekki hafa séð vinsældir framleiðslunnar fyrir og að í fyrstu hafi þetta aðeins verið gert til gamans.
�??Við stofnuðum þetta ég og Kjartan Vídó og við drógum bræður okkar, Davíð og Hlyn, inn í þetta með okkur. Síðan hafa ákveðnar breytingar orðið á eignarhaldinu, Davíð er ekki lengur í hópnum en Hannes Kristinn Eiríksson er kominn í þetta með okkur og nú síðast fjárfestir sem hefur trú á verkefninu. Í fyrstu fórum við að brugga bjór í kjallaranum hjá mér. �?etta var árið 2013 en það var svo í árslok 2014 sem við fengum stærri græjur til framleiðslunnar. Ári síðar fórum við að huga að því að fá framleiðsluleyfi og í byrjun janúar síðastliðins hófum við framleiðslu á bjórnum fyrir Einsa Kalda hérna í Eyjum.�??
Notast við hráefni úr Eyjum
Afurðir The Brothers Brewery hafa fengið mjög góðar viðtökur en hjá Einsa Kalda hafa 12 tegundir verið seldar almenningi. Síðastliðið sumar kynnti fyrirtækið bjórinn Togara á Bjórhátíð Íslands á Hólum, en þar koma saman flest íslensku brugghúsanna. Togarinn var valinn besti bjórinn af gestum hátíðarinnar.
�??�?etta er algjört handverk hjá okkur og við höfum farið óhefðbundnar leiðir. Meðal annars höfum við notast við söl til framleiðslunnar sem eru tínd hér í fjörunni í Eyjum. Einnig höfum við notað kerfil, sem flestir álíta bara illgresi,�?? segir Jóhann.
Framleiðslan verður í húsnæði sem fyrirtækið hefur tekið á leigu að Vesturvegi í Vestmannaeyjum, en þar verður einnig komið upp eins konar gestastofu og lítilli ölstofu.
�??Við stefnum að því að sinna bruggun fram til tvö á daginn en eftir það verður starfsemin opin ferðamönnum og öðrum þeim sem vilja kynna sér fyrirtækið. �?etta verður því ákveðin viðbót við afþreyingarmöguleikana hér í Eyjum.�??
Mögulega í Vínbúðirnar
Jóhann segir að á næsta ári sé ætlunin sú að auka framleiðsluna í 30 þúsund lítra og því ljóst að framleiðslugetan verður ekki nýtt nema til hálfs.
�??Við viljum fara varlega af stað en við erum bjartsýnir á að vöxturinn haldi áfram. Allar áætlanir sem við höfum gert hingað til hafa sprungið eftir um tvo mánuði og það gæti allt eins gerst í þessu einnig.�??
Spurður hvort vörur fyrirtækisins verði aðgengilegar neytendum í Vínbúðunum segir Jóhann það ekki víst.
�??Fyrst viljum við mæta eftirspurn þeirra sem kallað hafa eftir vörunni en það gæti komið til greina. Við myndum þá helst vilja selja vöruna í Vínbúðinni hér í Eyjum þannig að ferðamenn sem hingað koma gætu nálgast vöruna en reglur ÁTVR bjóða ekki upp á slíkt. Fyrst verður varan að fara í prufusölu í ákveðnum búðum áður en hún getur komið á minni staðina. �?etta verður bara að koma í ljós.�??
Mbl.is greindi frá.