Opna nýtt og öfl­ugra brugg­hús og öl­stofu
Í upp­hafi næsta árs mun ör­brugg­húsið The Brot­h­ers Brewery í Vest­manna­eyj­um fá ný brugg­tæki til fram­leiðslu sinn­ar og um leið mun fram­leiðslu­geta þess nær sex­fald­ast. �?á vinna for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins að opn­un nýs öl­húss þar sem gest­um og gang­andi mun gef­ast kost­ur á að kynn­ast afurðunum.
Jó­hann �?laf­ur Guðmunds­son er brugg­ari fyr­ir­tæk­is­ins og einn af for­sprökk­um þess.
�??Við tók­um ákvörðun um að fjár­festa í þess­um tækj­um vegna þess að eft­ir­spurn­in eft­ir fram­leiðslunni hjá okk­ur hef­ur vaxið gríðarlega. Með nýju tækj­un­um gefst okk­ur einnig kost­ur á að setja bjór­inn á flösk­ur og með því koma hon­um í sölu á bör­um og veit­inga­hús­um sem ekki eru með bjórdæl­ur, en hingað til höf­um við aðeins selt fram­leiðsluna í kút­um.�??
Bræður byrja að brugga
Jó­hann seg­ist ekki hafa séð vin­sæld­ir fram­leiðslunn­ar fyr­ir og að í fyrstu hafi þetta aðeins verið gert til gam­ans.
�??Við stofnuðum þetta ég og Kjart­an Vídó og við dróg­um bræður okk­ar, Davíð og Hlyn, inn í þetta með okk­ur. Síðan hafa ákveðnar breyt­ing­ar orðið á eign­ar­hald­inu, Davíð er ekki leng­ur í hópn­um en Hann­es Krist­inn Ei­ríks­son er kom­inn í þetta með okk­ur og nú síðast fjár­fest­ir sem hef­ur trú á verk­efn­inu. Í fyrstu fór­um við að brugga bjór í kjall­ar­an­um hjá mér. �?etta var árið 2013 en það var svo í árs­lok 2014 sem við feng­um stærri græj­ur til fram­leiðslunn­ar. Ári síðar fór­um við að huga að því að fá fram­leiðslu­leyfi og í byrj­un janú­ar síðastliðins hóf­um við fram­leiðslu á bjórn­um fyr­ir Einsa Kalda hérna í Eyj­um.�??
Not­ast við hrá­efni úr Eyj­um
Afurðir The Brot­h­ers Brewery hafa fengið mjög góðar viðtök­ur en hjá Einsa Kalda hafa 12 teg­und­ir verið seld­ar al­menn­ingi. Síðastliðið sum­ar kynnti fyr­ir­tækið bjór­inn Tog­ara á Bjór­hátíð Íslands á Hól­um, en þar koma sam­an flest ís­lensku brugg­hús­anna. Tog­ar­inn var val­inn besti bjór­inn af gest­um hátíðar­inn­ar.
�??�?etta er al­gjört hand­verk hjá okk­ur og við höf­um farið óhefðbundn­ar leiðir. Meðal ann­ars höf­um við not­ast við söl til fram­leiðslunn­ar sem eru tínd hér í fjör­unni í Eyj­um. Einnig höf­um við notað kerf­il, sem flest­ir álíta bara ill­gresi,�?? seg­ir Jó­hann.
Fram­leiðslan verður í hús­næði sem fyr­ir­tækið hef­ur tekið á leigu að Vest­ur­vegi í Vest­manna­eyj­um, en þar verður einnig komið upp eins kon­ar gesta­stofu og lít­illi öl­stofu.
�??Við stefn­um að því að sinna brugg­un fram til tvö á dag­inn en eft­ir það verður starf­sem­in opin ferðamönn­um og öðrum þeim sem vilja kynna sér fyr­ir­tækið. �?etta verður því ákveðin viðbót við afþrey­ing­ar­mögu­leik­ana hér í Eyj­um.�??
Mögu­lega í Vín­búðirn­ar
Jó­hann seg­ir að á næsta ári sé ætl­un­in sú að auka fram­leiðsluna í 30 þúsund lítra og því ljóst að fram­leiðslu­get­an verður ekki nýtt nema til hálfs.
�??Við vilj­um fara var­lega af stað en við erum bjart­sýn­ir á að vöxt­ur­inn haldi áfram. All­ar áætlan­ir sem við höf­um gert hingað til hafa sprungið eft­ir um tvo mánuði og það gæti allt eins gerst í þessu einnig.�??
Spurður hvort vör­ur fyr­ir­tæk­is­ins verði aðgengi­leg­ar neyt­end­um í Vín­búðunum seg­ir Jó­hann það ekki víst.
�??Fyrst vilj­um við mæta eft­ir­spurn þeirra sem kallað hafa eft­ir vör­unni en það gæti komið til greina. Við mynd­um þá helst vilja selja vör­una í Vín­búðinni hér í Eyj­um þannig að ferðamenn sem hingað koma gætu nálg­ast vör­una en regl­ur ÁTVR bjóða ekki upp á slíkt. Fyrst verður var­an að fara í prufu­sölu í ákveðnum búðum áður en hún get­ur komið á minni staðina. �?etta verður bara að koma í ljós.�??

Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.