2 kr. af hverjum seldum lítra hjá Orkunni í Eyjum renna til fjáröflunar fyrir Abel allan febrúar.
Orkan í Eyjum styður með þessu framtaki þá fjáröflun sem þegar er hafin og vil þar með hjálpa Abel að tryggja sér bestu mögulegu læknishjálp.
�??Nú geta allir hér í Eyjum tekið þátt í þessu verkefni með einum eða öðrum hætti, allir þeir sem versla á Orkunni í febrúar leggja málefninu lið þegar þeir taka eldsneyti hjá Orkunni, þar sem 2 kr. af allri eldsneytissölu renna beint til málefnisins�??segir Birgir Sveinsson umboðsmaður Orkunnar í Eyjum eða Biggi í Tvistinum eins og Eyjamenn þekkja hann.