�?að voru ekki allir sem fengu jólafrí um jólin og voru starfsmenn HS veitum í Vestmannaeyjum sem misstu ef til vill af jólasteikinni í ár. Á jóladag fór í sundur vatnsrör við Standveg beint fyrir utan Tölvun, sem gerði það að verkum að vatnlaust var í hluta Vestmannaeyjabæjar. Vatnsleysið stóð yfir nánast allan jóladag og var það stór partur af Strandveginum sem var vatnslaust.
Annan í jólum sprakk svo annað vatnsrör neðst á Heiðarveginum beint fyrir uta innganginn á Prófastinum og var það heldur alvarlegrar heldur en það sem sprakk á Jóladag.
Ívar Atlason hjá HS veitum sagði það ótrúlega óheppni að rörin tvö skyldu springa sitthvorn jóladaginn. Aðspurður sagði hann að engar augljósar skýringar væri á þessu nema það að lagnirnar eru í eldri kantinum. Kalla þurfti út mannskap HS veita ásamt gröfumönnum til þess að gafa upp og komast að. Skemmdin neðst á Heiðarveginum var það alvarleg að erfitt var að gera nokkuð �??við þurftum því að bora aðra hjá holu hjá TM til þess blinda�?? sagði Ívar.
Ívar sagði að það þyrfti að fara í frekari viðgerðið eftir áramót neðst á Heiðarveginum þar sem skemmdin var mikil þar �?? við þurfum að grafa meira og kíkja betur á þetta í næstu viku�?? sagði Ívar að lokum.