Bergur Kristinsson, formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi, er mjög ánægður með viðbrögð Samtaka atvinnulífsins við skötuselsfrumvarpinu. Þar sé verið að bregðast við þeirri lögleysu sem frumvarpið er. Það sé líka fyrsta skrefið að því að fyrna aflaheimildir í botnfiski sem sé eindreginn vilji ríkisstjórnarinnar.