Páley Borgþórsdóttir, verðandi lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, óskaði eftir því á bæjarstjórnarfundi í kvöld að hætta störfum í bæjarstjórn og þar með einnig sem formaður bæjarráðs. Bæjarfulltrúar urðu við þessari beiðni Páleyjar en erindi hennar var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum rétt í þessu undir lok fundarins í Einarsstofu Safnahúss Vestmannaeyja.
Páley segir í samtali við Eyjafréttir.is að ekkert í lögum um sveitarstjórnir kveði á um að hún geti ekki starfað áfram í bæjarpólitíkinni en henni hafi fundist eðlilegast að víkja sæti frá og með 1. janúar næstkomandi þegar hún tekur við starfi lögreglustjóra, hún var ein fimm umsækjenda um starfið.
Páley tók fyrst sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2006. Í bréfi hennar til bæjarstjórnar kemur fram að hún hafi átt góða tíma í bæjarstjórn. Páley segist þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að starfa fyrir Eyjamenn. �??�?að er mitt mat að vel hafi tekist til og ég er stolt af mörgu sem bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur komið í verk þessi ár. Bæjarstjórn er vel skipuð og starfsmenn bæjarins eru einvalalið, þeim treysti ég til áframhaldandi góðra starfa,�?? segir Páley í bréfi sínu.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir mun taka sæti Páleyjar í bæjarstjórn Vestmannaeyja á nýju ári.
-SJ