Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað nýtt ferðamálaráð til fjögurra ára.
Formaður ráðsins er �?órey Vilhjálmsdóttir og varaformaður Páll Marvin Jónsson. �?au eru skipuð án tilnefningar, segir í tilkynningu á vef ráðuneyisins.
�?órey er fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. �??Hún hefur áralanga reynslu af fyrirtækjarekstri, stjórnun og stefnumótun. �?órey er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á alþjóðaviðskipti og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. �?á stundaði hún auk þess nám við markaðs- og útflutningsfræði við Endurmenntunardeild Háskóla Íslands.
Páll Marvin er formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja og framkvæmdastjóri �?ekkingarseturs Vestmannaeyja,�?? segir í tilkynningu frá iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Aðrir í ferðamálaráði eru: Halldór Benjamín �?orbergsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir og �?órir Garðarsson, tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar. Aldís Hafsteinsdóttir og Hjálmar Sveinsson, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ásbjörn Björgvinsson og Díana Mjöll Sveinsdóttir, tilnefnd af Ferðamálasamtökum Íslands og Jón Ásbergsson, tilnefndur af Íslandsstofu.