Páll Óskar Hjálmtýsson mun semja þjóðhátíðarlagið í ár. Þetta var tilkynnt á fjölmennum borgarafundi í Höllinni í kvöld þar sem fjallað var um málefni þjóðhátíðarinnar og framtíðarsýn þjóðhátíðarnefndar. Auk þess var glæsileg dagskrá hátíðarinnar í ár kynnt en fundargestir klöppuðu vel þegar höfundur þjóðhátíðarlagsins var kynntur til leiks.