Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um nafn á nýrri Vestmannaeyjaferju, en hann mun taka endanlega ákvörðun um nafnið.
Ráðherra ætlar að hlera sjónarmið heimamanna,er haft eftir Jóhannesi Tómassyni upplýsingafulltrúi í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Ráðherra mun hafa lokaorð um hvaða nafn verður fyrir valinu.
Vinnuhópurinn um hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju ákvað nýlega að vinnuheiti nýju ferjunnar yrði Vilborg, eins og Eyjafréttir greindu frá fyrst
hérna.