Rakel Hlynsdóttir hefur verið valin í úrtakshóp U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta. Alls voru 31 leikmaður valinn í fyrstu atrennu en þjálfari liðsins, Guðmundur Karlsson hefur kallað leikmennina í mælingu. Þegar niðurstöður mælinganna liggja fyrir, þá verður fyrst valið í æfingahóp sem æfir milli jóla og nýárs.