Rasmus aftur til liðs við ÍBV

Knattspyrnumaðurinn Rasmus Christiansen hefur gengið til liðs við ÍBV og skrifaði undir samning við knattspyrnudeild félagsins til loka þessa tímabils. Rasmus er ekki að koma í fyrsta skiptið til ÍBV en þessi 34 ára gamli miðvörður kom einnig til liðsins árið 2010, 20 ára gamall.

Rasmus lék 64 af 66 leikjum ÍBV árin 2010-2012, fyrsta árið lék Rasmus með Eiði Aroni Sigurbjörnssyni þar sem þeir mynduðu magnað miðvarðapar í ÍBV liði sem var einum sigri frá Íslandsmeistaratitli undir stjórn Heimis Hallgrímssonar. Öll árin sem Rasmus lék með ÍBV var 3. sætið niðurstaðan í deildinni þar sem hann var án alls vafa einn af bestu varnarmönnum efstu deildar.

Rasmus hélt til Noregs þar sem hann lék með Ull/Kisa eftir árin með ÍBV áður en leið hans lá aftur til Íslands. Hann gekk til liðs við bikarmeistara KR og lék með þeim árið 2015 áður en Valsmenn sóttu hann til erkifjenda sinna. Árin 2017 og 2018 varð Rasmus Íslandsmeistari með Valsliðinu og árið 2019 hjálpaði hann Fjölnismönnum að vinna sér sæti í efstu deild, þá á láni frá Valsmönnum. 2020 varð hann aftur Íslandsmeistari með Val og þá í lykilhlutverki þar sem hann lék alla 18 leiki liðsins.

Á síðasta ári lék Rasmus lykilhlutverk í sterku liði Aftureldingar sem endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar.

Við viljum bjóða Rasmus velkominn á nýjan leik til Vestmannaeyja og ríkir mikil ánægja innan félagsins með heimkomu hans en Rasmus á tvö börn með Elísu Viðarsdóttur, sem er ein af bestu knattspyrnukonum Vestmannaeyja fyrr og síðar.

ÍBV.

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.