Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu í gær hafa forsvarsmenn Ribsafari í Vestmannaeyjum ákveðið að hætta siglingum í Landeyjahöfn til 22. júlí eða degi eftir að Herjólfur hefur siglingar í höfnina. Þeir segjast sýna því skilning að höfnin sé vinnusvæði. Forstöðumaður hafnasviðs Siglingastofnunar sagði í útvarpsfréttum í gær að síaukin umferð um Landeyjahöfn, bæði á sjó og landi, truflaði vinnu verktaka, auk þess sem slysahætta væri mikil.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst