Handknattleiksmaðurinn sterki, Róbert Aron Hostert leikmaður ÍBV, hélt utan til Danmerkur í morgun til að ræða við forsvarsmenn danska úrvalsdeildarliðsins Mors/Thy. �?etta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Danska liðið er eitt af mörgum sem hefur áhuga á að fá Róbert til liðs við sig en þýska liðið Hannover-Burgdorf er eitt þeirra.
�??�?að er margt í gangi hjá mér og nú þarf maður bara að velja rétta liðið. �?g ætla að sjá hvað kemur út úr þessu hjá Mors/Thy og það gæti verið góður kostur að fara til liðsins. �?g vil fara að klára þessi mál en maður þarf að vanda valið,�?? sagði Róbert við Morgunblaðið.