Þessa dagana fer fram flutningur á lifandi fiskum og öðrum sjávarlífverum frá Sæheimum í ný heimkynni hjá Sea Life Trust að Ægisgötu 2. Búið er að flytja flest dýrin, en ennþá eru nokkur sérstaklega þrjósk hornsíli eftir og litlir krabbar sem eru í felum bak við steina.
Sæheimar hafa nú hætt starfsemi sinni og lýkur þar með sögu þessa safns, sem var stofnað 5. júní árið 1964 undir nafninu “Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja”. Þann 7. febrúar 1965 var fuglasalurinn opnaður og 7. apríl sama ár var fiskasalurinn opnaður. Það eru því um 54 ár frá því að fyrstu fiskarnir voru fluttir í sýningarbúrin og þar til þeir síðustu eru fluttir á brott.
Nú styttist óðum í að nýja sýningaraðstaðan opni og eru því spennandi tímar framundan. Auðvitað munu margir sakna gamla góða Fiskasafnsins en með nýjum tímum koma ný tækifæri og erum við þess fullviss að heimamenn eigi eftir að vera stoltir af nýju sýningunni og að hún muni bera hróður Eyjanna víða, segir í tilkynningu á heimasíðu Sæheima.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.