Sækist eftir 3. sæti
Jarl Sigurgeirsson

Aðsend grein

Jarl Sigurgeirsson

Kæru vinir

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þann 13. mars næstkomandi og sækist eftir 3. sæti á listanum.

Ég hef verið virkur í starfi flokksins í rúm 20 ár, bæði í grasrótarstarfi og fagráðum bæjarins, og gegnt embætti formanns fulltrúaráðs síðustu átta ár. Ég hef einnig setið á lista flokksins í Suðurkjördæmi og tekið þátt í prófkjöri fyrir alþingiskosningar 2021. Sú reynsla styrkti áhuga minn á að leggja enn meira af mörkum.

Ég kom seint inn í pólitík. Slíkt var ekkert rætt á mínu heimili og ég var alinn upp án nokkurra pólitískra gilda. Það var ekki einu sinni spáð í hvort maður væri með Tý eða Þór. Mín pólitíska innræting kom frá ömmu Láru í Dölunum. Hún var mikil sjálfstæðiskona og kenndi mér margt um veröldina, eins og til dæmis hvað kommúnistar væru. Þótt mínar skoðanir séu mildari en hennar er þar samhljómur. Þau gildi sem hún kenndi mér met ég mikils.

Ég hef í rúmlega tvo áratugi verið í grasrótastarfi og þekki mikilvægi þess. Nú er tímabært fyrir mig að taka næsta skref.

Ef við búum til jarðveg fyrir fólk og fyrirtæki, með viðunandi innviðum og jákvæðu viðmóti yfirvalda, þá kemur hingað bæði fólk og fyrirtæki.

Vestmannaeyjar eru í dag í einstakri stöðu. Á sama tíma og margir sjá að lífsgæði utan höfuðborgarsvæðisins séu sífellt að verða eftirsóknarverðari eru gildi okkar Eyjamanna og lífsgæði Eyjanna í sívaxandi eftirspurn.

Ég trúi því af allri einlægni að framtíð Vestmannaeyja byggist á skýrum áherslum: öflugum innviðum, jákvæðu og skilvirku viðmóti stjórnvalda og aðstæðum sem laða að bæði fólk og fyrirtæki. Með breyttum tímum og auknu frelsi til búsetu eigum við raunhæft tækifæri til að styrkja Eyjarnar enn frekar sem eftirsóknarverðan stað til að búa og starfa í. Það gerist þó ekki af sjálfu sér – það þarf markvissa vinnu og skýra sýn.

Ég tel reynslu mína, þekkingu á starfi flokksins og brennandi áhuga á samfélaginu okkar vera góðan grunn til að byggja á og bjóða mig fram til bæjarstjórnar. Ég vil leggja mitt af mörkum til að móta sterka og bjarta framtíð fyrir Eyjarnar.

Allt ofangreint hefði ég getað sagt í þremur orðum: „Ég elska Vestmannaeyjar“.

Það er þess vegna sem ég býð mig fram í 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins.

Ég óska eftir stuðningi ykkar í prófkjörinu og hlakka til spennandi og málefnalegrar kosningabaráttu með öflugu fólki.

 

Jarl Sigurgeirsson

Nýjustu fréttir

Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti
Íris kveður H-listann með þakklæti
Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.