Safnahelgi í Eyjum: Takið helgina frá ! 
Tónleikar Pálma Sigurhjartar og Stefaníu Svavars. Myndlistarsýning Jóhönnu Boga. Margrét Lára, Óli Gränz og fleiri kynna nýju bækurnar sínar
Pálmi Sigurhjartar og Stefanía Svavars eru meðal fjölmargra listamanna sem koma fram á Safnahelgi. Mynd/aðsend.

Það verður fjölbreytt dagskrá að vanda um safnahelgina sem haldin verður 30. október til 2. nóvember.  Pàlmi Sigurhjartarson píanóleikari og Stefanía Svavarsdòttir söngkona hafa á undanförnum árum sem dúó leikið og sungið sig inn í hjarta þjóðarinnar með yfirgrips mikla þekkingu á helstu stílum dægurtónlistar og túlkun í hæsta gæðaflokki. Nú mæta þau í fyrsta sinn saman sem dúó  í Eldheima  föstudagskvöldið 31. október og taka margar af ástsælustu perlum tónlistarsögunnar. Búast má við rafmagnaðri stemmningu á órafmögnuðum tónleikum hjá þessum frábæru listamönnum.

Jóhönnu Boga þarf vart að kynna.  Það er langt síðan að hún sýndi sín mögnuðu verk í Eyjum. Sýningin verður án efa einn af hápunktum safna helgarinnar. Sýningin opnar fimmtudaginn 30. október  í Einarsstofu.

Sagnheimar taka á móti gestum í konunglegt teboð þar sem Guðný Ósk Laxdal  heldur erindi um dönsku konungsfjölskylduna en Guðný Ósk heldur úti vinsæla Instagram reikningnum Royal Icelander þar sem hún deilir fréttum og fróðleik úr heimi kóngafólksins.

Kynning á nýjum bókum hefur frá upphafi verið stór og mikilvægur þáttur í safnahelginni. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að þessu sinni Eyjafólk með verk sín. Margrét Lára Viðarsdóttir kynnir bók sína „Ástríða fyrir leiknum“.

Óla Gränz þarf vart að kynna, en hann hefur brallað ansi margt um daganna og hefur frá mörgu að segja.  Það er mjög ánægjulegt að nú sé að koma út ævisaga hans, skráð af Guðna Einarssyni. Kynning á þessari bók verður án efa hin besta skemmtun.

Dagskráin í heild verður kynnt á allra næstu dögum, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins
Bærinn í samstarf við Markaðsstofu Suðurlands
Alex Freyr Hilmarsson íþróttamaður Vestmannaeyja
Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.