Síðan Landeyjarhöfn kom hefur hún verið mikið í umræðunni. Eðlilega heyrast efasemdaraddir um höfnina og framtíð okkar með þær samgöngubætur. Mín skoðun á málinu er að smíða eigi nýtt skip eftir þeim hugmyndum sem koma frá smíðanefndinni. �?ó eflaust megi eitthvað bæta í hönnuninni eins og bæjarstjórn benti svo ágætlega á. Margir hafa verið að benda á allt það sem miður hefur farið, sérstaklega yfir vetrartímann og eru margir efasemdarmenn um þessa framkvæmd. Rétt eins og var þegar Hvalfjarðargöng voru byggð. �?g skora á fólk að fara inná heimasíðu Spalar og lesa heimsendaspárnar sem ritaðar voru í aðdraganda byggingar gangnanna. �?ar gekk Jónas Kristjánsson rithöfundur hvað harðast fram ásamt ýmsum verkfræðingum og fleiri sérfræðingum með ýmsar spár, sem fæstar hafa ræst, ef einhver.
�?g vona að núna að með öðru og betra dæluskipi munu aðstæður batna töluvert. Dælingar í höfninni munu verða þá vonandi mun markvissari og minna um bilanir hjá þeim aðilum sem hafa séð um dælingar síðustu ár. En mér skilst að þau skip hafi meira verið sandflutningsskip en sanddæluskip.
En við erum samt enn með hann Herjólf gamla okkar sem lætur illa að stjórn og miðast siglingar hans í höfnina við 2m ölduhæð, massa, öldulengd, mikinn vind og ég veit ekki hvað. Hann sem sagt lætur illa að stjórn miðað við allskonar aðstæður. �?g vonast til að nýtt skip muni láta betur að stjórn og verði því betri lausn. Ekki síst fyrir skipstjórnarmenn Herjólfs sem hafa ekki verið öfundsverðir í sínu starfi. Höfnin sjálf er svo sér kapituli útaf fyrir sig. Eflaust á ýmislegt eftir að breytast þar og ég hef fulla trú á því að menn hjá Samgöngustofu séu að skoða hvað megi betur fara í þeim málum. �?ví ég er einn af þeim sem held að þar séu menn á fullu að vinna sína vinnu rétt eins og ég og þú lesandi góður sinnum okkar verkum af bestu samvisku og trúi ég því að þeir séu að ráðfæra sig við erlenda aðila ef þurfa þykir. Auðvitað fylgja vandamál svona stórri framkvæmd. �?að er ekki við öðru að búast. En vandamálin eru til að takast á við þau og leysa.
�?g hvet alla til að lesa góða grein eftir Jóa í Laufási um ýmislegt sem mætti laga í sambandi við bókanir og fleira sem snýr að þjónustuaðilanum gagnvart farþegum Herjólfs. Ef Eyjamenn ættu að sameinast um eitthvað þá væri það að
�?að sem ég er að segja í stuttu máli er að þessi ár sem þessi reynsla sem komin er á höfnina er ekki marktæk að öllu leyti þar sem við höfum hvorki haft hentug skip til dælinga né siglinga.
�?g veit allavega að ég mun fagna nýrri ferju og hér á Berg-Huginn mun ég bjóða samstarfsfélögum mínum uppá rjómatertu til að fagna undirskrift á smíði á nýjum Herjólfi.
Kveðja Guðni Hjöll vinur Eyjanna.