Í framhaldi afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs í júlí, varðandi útlit á suðurgafli frystiklefa VSV inni á Eiði hefur VSV óskað eftir samstarfi við Vestmannaeyjabæ um hönnunarsamkeppni um útlit gaflsins. �?skað er eftir tveimur fulltrúum Vestmannaeyjabæjar í dómnefnd.
Umhverfis -og skipulagsráð hrósar Vinnslustöðinni fyrir þann vilja og viðleitni til þess að vanda til verka varðandi útlit á suðurgafli frystigeymslu við Kleifar 2. Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar í dómnefndinni eru formaður ráðsins, Margrét Rós Ingólfsdóttir og Hafþór Halldórsson verkefnastjóri á tæknideild. Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar eru Pétur Jónsson og �?orsteinn �?li Sigurðsson.
Ráðið veitti lóðarhafa heimild til þess að hefja framkvæmdir í samráði við samþykkt gögn.
Stefán �?. Jónasson, fulltrúi E-listans í ráðinu lét bóka að honum finndist óeðlilegt að E-listinn eigi ekki fulltrúa í dómnefnd.
D-listinn bókaði: -Fulltrúar meirihlutans telja ekkert óeðlilegt við að fulltrúi E-lista sitji ekki í ofangreindri dómnefnd og bera fullt traust til þeirra aðila sem hana skipa í þessu máli. Tillögur, afstaða og niðurstaða ofangreindrar dómnefndar mun verða kynnt fyrir umhverfis -og skipulagsráði þegar að slíkt liggur fyrir, bæði til umræðna og afgreiðslu. �?ar hefur fulltrúi E-listans, eins og í öllum öðrum málum sem tekin eru fyrir á fundi ráðsins, fulla heimild til þess að koma með athugasemdir við þá tillögu.
Undir þetta rita Margrét Rós Ingólfsdóttir, formaður, Esther Bergsdóttir, Ingólfur Jóhannesson og Kristinn Bjarki Valgeirsson.
Myndin sýnir hugmyndir Vinnslustöðvarinnar að framkvæmdum inni á Eiði.