Samstarfsverkefni um landgræðslu og endurheimt skóg- og kjarrlendis

Hekluskógar eru samstarfsverkefni um landgræðslu og endurheimt skóg- og kjarrlendis með innlendum tegundum á Hekluskógasvæðinu. Höfuðmarkmið verkefnisins er endurheimt birkiskóga til að verjast afleiðingum öskugosa.
Reynslan hefur sýnt að skóglaust land þolir slík gos afar illa en birkiskógur hemur öskuna og hún hverfur í skógarbotninn. �?arna er því verið að reisa náttúrlegan varnargarð gegn náttúruhamförum. Auk þess munu þessar aðgerðir bæta landgæði, binda kolefni, stuðla að bættum vatnsbúskap, auka verðmæti lands og skapa nýja möguleika í ferðamennsku.

Fjölmargir aðilar hafa tekið þátt í undirbúningi verkefnisins. �?eir eru: Landbúnaðarháskóli Íslands, landeigendur á Hekluskógasvæðinu, Landgræðsla ríkisins, Landgræðslusjóður, Náttúrufræðistofnun Íslands, Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag Árnesinga, Skógræktarfélag Rangæinga og Suðurlandsskógar.

Frétt af land.is

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.