Samverustundirnar dýrmætar
Eyjakonan og jólabarnið Agnes Gústafsdóttir býr í Hafnarfirði ásamt unnusta sínum Aroni �?ttari Traustasyni og dóttur þeirra Stefaníu. Líkt og svo margir aðrir viðmælendur í blaðinu þá hefur Agnes mikið dálæti á jólunum og öllu því sem þeim tengjast. Blaðamaður ræddi við Agnesi um undirbúning jólanna, hefðirnar, lögin og allt hitt sem gerir jólin að því sem þau eru.
Svalar jólaskreytingarþörfinni með kertaskreytingum í nóvember
Hvenær byrjar þú að skreyta og skreytir þú almennt mikið? �??�?g reyni að bíða með jólaskrautið fram yndir fyrsta desember eða lok nóvember, það fer svolítið eftir því hvernig prófatörnin er hvenær ég hef tíma til að skreyta,�?? segir Agnes sem byrjar þó mun fyrr að færa heimilið í vetrarbúninginn. �??�?g geri samt oft svona �??vetrarlegar�?? kertaskreytingar til að svala jólaskreytingarþörfinni í nóvember. �?g bý alltaf til aðventukrans úr greni og nýti það skraut líka til þess að búa til fleiri skreytingar. �?g er svo heppin að Stefaníu finnst mjög gaman að föndra svo að við vinnum í þessu saman og hún gerir sínar eigin skreytingar.�??
Jólaþorpið ómissandi
Uppsetning jólaþorpsins svokallaða er líka ómissandi liður í undirbúningnum. �??�?að er alltaf rosa stemning hjá okkur mæðgunum að setja upp jólaþorpið. Við höfum verið að safna húsum, köllum og trjám og svona í það og það er alltaf mjög fallegt. Jólaþorpið er mjög lifandi og tekur miklum breytingum í desember vegna þess að Stefaníu hefur alltaf þótt þetta skemmtilegasta dótið. �?að hafa því margir kallar misst höfuð eða útlimi, en við erum orðnar sérfræðingar í að veita þeim fyrstu hjálp með ofurlími,�?? segir Agnes sem hefur haft það fyrir hefð að skreyta jólatréð á �?orláksmessu en á því verður breyting í ár.
�??Jólatréð höfum við skreytt á �?orláksmessu, en erum að spá í að henda því fyrr upp í ár.
�?g held að við skreytum bara temmilega mikið. �?g væri alveg til í að skreyta meira úti, erum bara með seríur. Mér finnst voða gaman að skoða fallega jólaskreytt hús og garða í desember.�??
Hlustar á eitt og eitt lag í nóvember
En hvenær byrjar þú að hlusta á jólalög? �?g reyni að halda í mér svo ég fái ekki leið á þeim. Við hlustum á eitt og eitt í nóvember og það er svaka stemning. Svo í desember hlustum við á jólalög eins mikið og við nennum,�?? segir Agnes.
Notalegt að vera út af fyrir sig
Aðspurð hvernig jólunum hefur verið háttað síðustu árin segir Agnes fyrstu jólin eftir að Stefanía fæddist hafi þau verið í faðmi fjölskyldunnar en síðar meir út af fyrir sig. �??Fyrst vorum við hjá mömmu og pabba í Eyjum um jólin. �?að var yndislegt að vera með fjölskyldunni í Eyjum. Síðustu árin höfum við þó haldið jólin heima í bænum, bara við þrjú og Jóna tengdamamma. �?að hefur verið mjög rólegt og notalegt. �?etta árið verður svipað og síðustu ár. Aðfangadagur og jóladagur heima, bara við fjögur. Svo hittumst við systkinin í bænum með fjölskyldum okkar og gerum eitthvað skemmtilegt.�??
Gera það sem þeim þykir skemmtilegt
�?egar talið barst að jólahefðum sagði Agnes fjölskylduna ekki vera með neinar fyrirfram ákveðnar hefðir, þau geri bara það sem þeim þykir skemmtilegt hverju sinni. �??Við erum ekki beint með einhverjar fastar jólahefðir, heldur reynir maður bara að gera mikið af því sem manni finnst skemmtilegt. �?að sem við gerum alltaf er að búa til aðventukrans, baka smákökur og skreyta piparkökur. Við höfum sett saman piparkökuhús sem hefur alltaf verið brotið á þrettándanum. Við brutum þá hefð þetta árið þar sem piparkökuhúsið lét illa að stjórn og var því étið samdægurs. Við reynum svo bara að hafa eins kósý og við getum með því að horfa á fullt af jólamyndum. Við horfum líka yfirleitt á einhverjar myndaseríur eins og Lord of the Rings og Harry Potter. Svo smölum við fjölskyldunni saman í kaffiboð og spilakvöld. Aron er mikill spilafíkill og á jólunum gefst nægur tími til þess að spila. Svo höfum við gert okkur ferð í jólaþorpið undanfarin ár en það er mikil stemning að rölta um miðbæ Hafnarfjarðar og fá sér kakó í jólaþorpinu í góðu veðri.�??
Íhaldsöm þegar kemur að matnum
Hvað með jólamatinn, ertu íhaldsöm þegar það kemur að honum eða eru breytingar á milli ára? �??Við erum nokkuð íhaldssöm. �?að er ris ala mande í hádeginu og hamborgarhryggur á aðfangadag og svo hangikjöt á jóladag. Svo hef ég búið til einhvern góðan ís í eftirrétt,�?? segir Agnes sem ætlar ekki að breyta neinu í ár.
Upplifir jólin í gegnum dóttur sína
Hvað myndir þú segja að væri það besta við jólin? �??�?að hljómar kannski væmið en samveran með fjölskyldunni er það besta við jólin. �?g kann alltaf betur og betur að meta þessa samveru eftir hverja prófatörn, þar sem maður er mikið innilokaður með tölvunni. Eftir að við eignuðumst Stefaníu fór maður að upplifa jólin í gegnum hana og þá eru allar samverustundirnar svo dýrmætar. Að fara í göngu og skoða jólaljós, drekka kakó úti eftir sleðaferð, búa til snjókall, spila og horfa á góðar bíómyndir og bara að njóta þess að vera saman er svo dásamlegt. Svo er líka æðislegt að fara á tónleika eða leiksýningu. Stefanía hefur verið að bjóða okkur á jólasýningar í dansinum og fimleikunum og það er alltaf jafngaman.

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.