Fyrstu mánuðir ársins eru í smá þoku hjá mér, þar sem í lok ársins 2016 fæddi ég 17 marka heilbrigðan dreng. �?g eins og aðrar mæður um þessar mundir eyddi tíu dögum í borginni og beið eftir vísitölufjölskyldumeðlimnum. Heima í Vestmannaeyjum beið einn þriggja ára. �?etta var það erfiðasta við þessa lífsreynslu, skilja þriggja ára barnið sitt eftir og vita ekki hvenær þú kemur tilbaka og þegar tilbaka er komið er annar einstaklingur orðinn partur af fjölskyldunni. �?essi þriggja ára var nú alveg nokkuð mikið sama enda í góðum höndum hjá ömmum og öfum. �?g hins vegar grenjaði nokkrum sinnum við þessa tilhugsun, hormónarnir og allt það.
�?vílíkt kraftaverk sem eitt líf er ásamt allri þeirri gleði og geðshræringu sem því fylgir og vona ég að fæðingar í heimabyggð verði að veruleika aftur.
Fyrstu mánuðir ársins fóru því algjörlega í móðurhlutverkið, sem var yndislegt. Um mitt sumar á leiðinni í frí erlendis fékk ég það boð að taka við af �?mari Garðasyni sem ritstjóri Eyjafrétta. �?g átti svo sem ekki von á því þó ég vissi að �?mari langaði að fara minnka ábyrgðina. Eftir talsverðan umhugsunarfrest tók ég boðinu og 1. september var fæðingarorlofinu lokið, pabbinn tók við barninu og fór í fæðingarorlof og ég tók við sem ritstjóri.
Starf blaðamannsins er í senn krefjandi eins og það er skemmtilegt. Aldrei neinn dagur eins og maður sér aldrei fyrir endann, því það er alltaf næsta blað framundan. Eyjafréttir stíga inn í nýtt tímabil núna um áramótin og ætlum við að halda ótrauð áfram að flytja ykkur fréttir, viðtöl og allt það sem snýr að okkur Eyjamönnum. Flest allt okkar efni ratar í vikulega blaðið okkar en okkur til stuðnings er vefmiðillinn eyjafrettir.is sem er í endurhönnun og mun ný vefsíða líta dagsins ljós vonandi um næstu mánaðamót. Af nógu er að taka og munum við vera með fræðandi og upplífgandi blað einu sinni í viku sem ég vona að þú fáir inn um lúguna hjá þér.
Á tímamótum eins og þessum er alltaf gott að líta sér nær og vera þakklátur fyrir það sem maður á og fólkið í kringum mann. Reglulega er maður minntur á að heilsan er ekki sjálfsögð og óska ég mér og mínum góðrar heilsu á nýju ári.
�?g fer full tilhlökkunar inn í nýtt ár. �?ar bíða mín skemmtileg og krefjandi verkefni hjá Eyjafréttum og vonandi fullt af góðum samverustundum með fjölskyldu og vinum. Að lokum vill ég þakka fyrir samfylgdina á liðnu ári og óska ég ykkur öllum gleðilegs 2018.