Eggert Björgvinsson, tónlistakennari hefur fengið nóg af bensínhækkunum að undanförnu. Hann hefur nú sagt bensínokrinu stríð á hendur og fer nú um flestra sinna ferða á rafmagnsreiðhjóli. „Ég keypti þetta notað af einhverri konu í Reykjavík og fékk hjólið nú í byrjun vikunnar, sagði Eggert við blaðamann þegar þeir hittust í miðbænum.”