KFS og Árborg leika síðari leik sinn í kvöld í úrslitakeppni 3. deildar karla. Leikurinn fer fram á Selfossvelli klukkan 20:00 en Selfyssingar eru í nokkuð góðri stöðu eftir 0:2 sigur á Hásteinsvelli í fyrri leik liðanna. Það þýðir að KFS þarf að skora þrjú mörk til að eiga möguleika á því að komast áfram.