Sigurgeir sýnir í Vélasalnum

�?að þarf ekki að tíunda fyrir Eyjamönnum það ómetanlega starf sem Sigurgeir hefur unnið í að skrá sögu Vestmannaeyja frá því um miðja síðustu öld og um leið sögu íslensks sjávarútvegs. Myndirnar skipta einhverjum milljónum þannig að ekki verður nema lítið brot af æviverkinu sem ber fyrir augu sýningargesta.
Sigurgeir segist hafa ætlað að sýna aðra hlið á sér en þá sem hann er þekktastur fyrir, sem hann kallar F-in fimm. �?au er fréttir, fólk, fuglar, fiskur og formenn.
�?Sýningin átti að vera öðruvísi en niðurstaðan er að ég sýni myndir frá helstu atburðum í Vestmannaeyjum og ég hef myndað á síðustu fjörutíu til fimmtíu árum. �?ar má nefna m.a. bæði gosin, Surtseyjargosið 1963 og Heimaeyjargosið 1973 og afrek Guðlaugs Friðþórssonar. �?g ætla líka að sýna mannamyndir og formannamyndir.�?

Fitl við listagyðjuna
En hin hliðin fær líka sitt á pláss á sýningunni en þar sýnir Sigurgeir einstakar myndir þar sem hann leitar forma í náttúrunni, bæði stórra og smárra. �?�?g ætlaði að sýna fitl mitt við listagyðjuna og þó sýningin sé fjölbreyttari en til stóð, fær hún sinn sess blessunin. �?egar tími gefst til hef ég farið af stað í leit að skúlptúrum, formum og síðast en ekki síst litum í náttúrunni og fest á filmu. �?að er svo margt að sækja í náttúruna og mér finnst það heillandi verkefni að koma því til skila í gegnum ljósmyndavélina. �?g hlakka til að fá tækifæri til að sýna þessi verk og sýna á mér aðra hlið sem ljósmyndara.�?
�?etta er fyrsta sýning Sigurgeirs í fjörutíu ár og gerir hann ekki ráð fyrir að sýna aftur fyrr en að fjörutíu árum liðnum. �?�?g tók þátt í sýningunni Kontrast �?67, sem ég setti upp með fjórum öðrum árið 1967. Við byrjuðum hér en síðan fór sýningin til Reykjavíkur. Mér finnst hæfilegt að sýna á fjörutíu ára fresti þannig að næsta sýning verður árið 2047,�? sagði Sigurgeir.
Ákveðið er að sýningin verði opin virka daga fram að mánaðamótum frá klukkan fimm til sjö frá og með deginum í dag. Um helgar verður hún opin frá tvö til sex.

Einnig reiknar Sigurgeir með að sýna á Hótel �?órshamri þar sem sýndar verða myndir sem ekki komust fyrir í Vélasalnum. Verður hún opnuð næstu daga. �?á verða myndir af sýningunni í Vélasalnum hengdar upp í Flugstöðinni.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.