Sinna sjúkraflugi á öllu landinu
2. febrúar, 2024
sjukraflug-3.jpg
Sem stendur eru sjúkrabörur í flugvélum vottaðar fyrir sjúklinga undir 135 kg. Unnið er að því að hækka þyngdarmörk sjúklinga í sjúkraflugi. Eyjar.net/TMS

Þingmaðurinn Berglind Harpa Svavarsdóttir lagði fram á Alþingi fyrirspurn um sjúkraflug á landinu. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra var til svara, en um áramót tók Norlandair við sjúkrafluginu.

Berglind Harpa spurði ráðherra hvaða breytingar séu fyrirhugaðar á sjúkraflugi í kjölfar nýlegs útboðs á starfseminni.

Í svari ráðherra segir að nýr samningur gildi um sjúkraflug á öllu landinu en eldri samningur gilti aðeins um sjúkraflug á norðursvæði og Vestmannaeyjasvæði. Að öðru leyti eru ekki breytingar frá fyrri samningi. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur yfirumsjón með búnaði í vélum og læknisfræðilegum þáttum sjúkraflugs.

Hvernig hyggst ráðherra tryggja að áfram verði tvær sjúkraflugvélar til taks alla daga ársins?

Áfram er samið um notkun á aðalvél sem skal vera aðgengileg allan sólarhringinn allan ársins hring og varavél, í þeim bráðatilfellum sem aðalvélin er í notkun, við sérstakar álagsaðstæður auk þess sem varavélin er nýtt til sjúkraflutninga milli stofnana þrjá daga í viku. Ekki er um breytingu á samningnum að ræða hvað varðar þennan þátt heldur er miðað við fyrri samning.

Á hverju byggist sú regla sem stuðst er við í framkvæmd að gefa sjúkrastofnunum á landsbyggðinni 36 klukkustunda svigrúm fyrir sjúkling sem lagður er með bráðainnlögn á sjúkrahús til meðhöndlunar, athugunar og rannsókna áður en nauðsynlegt sjúkraflug með sjúklinginn flokkast sem flutningur á milli sjúkrahúsa?

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga vegna sjúkraflugs byggir á 28. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Sjúkratryggingar greiða skv. 1. mgr. ákvæðisins flutning í þeim tilvikum þegar um er að ræða bráðatilfelli. Hins vegar greiðist sjúkraflutningur milli sjúkrahúsa skv. 3. mgr. sömu greinar að meginreglu af því sjúkrahúsi sem sendir sjúkling, með þeim undantekningum sem nánar eru tíundaðar í lagagreininni.

Í framkvæmd hafa komið upp þau tilfelli þar sem flytja þarf einstakling sem hefur verið fluttur bráðaflutningum á sjúkrahús áfram vegna sama bráðatilfellis. Á það einna helst við um sjúklinga sem fyrst eru fluttir á sjúkrahús eða heilbrigðisstofnun og eru svo fluttir áfram með sjúkraflugi á Landspítalann.

Í framkvæmd hafa Sjúkratryggingar Íslands (og þar á undan Tryggingastofnun ríkisins) um langt skeið túlkað það sem svo að þegar slíkur flutningur fer fram á fyrstu 36 klukkustundum eftir innlögn sjúklings sé um bráðaflutning skv. 1. mgr. að ræða en ekki millistofnanaflutning skv. 3. mgr.

Sérstök yfirlýsing hefur verið gefin út vegna þessa til heilbrigðisstofnana. Fyrsta yfirlýsingin þess efnis var gefin út af Tryggingastofnun ríkisins árið 2005 og var markmiðið með þessu aukna svigrúmi við bráðaflutning lýst með eftirfarandi hætti:

„Markmiðið með þessari tilhögun er að ná aukinni sameiginlegri hagræðingu með því að viðkomandi sjúkrahús geti í viðeigandi tilvikum notað þetta aukna svigrúm til að leggja frekara mat á hvort þörf sé á sjúkraflugi eða ekki.“

Dæmi voru um að til þess að komast hjá því að kostnaður við sjúkraflutning lenti á viðkomandi stofnun hefðu heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins síður viljað leggja sjúkling inn ef einhverjar líkur voru á að flytja þyrfti hann áfram á Landspítala. Til að draga úr óþarfa sjúkraflutningum var ákveðið að gefa sjúkrahúsunum 36 klukkustunda svigrúm til að geta betur metið ástand sjúklingsins og þörf hans fyrir þjónustu á hærra þjónustustigi en stofnunin gæti boðið upp á.

Stendur til að endurskoða þann 36 klukkustunda tímaramma sem stuðst er við í framkvæmd og stýrir því hvort Sjúkratryggingar Íslands eða viðkomandi sjúkrastofnun ber kostnað af sjúkraflutningum?

Hefur verið tekið til skoðunar hvort vaxandi tíðni sjúkraflugferða mætti rekja til umræddrar 36 klukkustunda reglu og um leið aukið álag á Landspítala vegna tilvika sem annars væri hægt að sinna á landsbyggðinni?

Vaxandi tíðni sjúkraflugs hérlendis hefur ekki verið tengd við 36 klukkustunda regluna, enda liggur fyrir að tíðni sjúkraflugs helst í hendur við umfang og álagspunkta heilbrigðisþjónustunnar. Lagt er mat með reglubundnum hætti á samninga og gildandi reglur í úttektum á samningum og við endurnýjun þeirra og á það einnig við um sjúkraflug. Ekkert hefur komið upp í tengslum við þær úttektir sem bendir til þess að brýn þörf sé á að endurskoða 36 klukkustunda regluna. Það bendir til þess að í flestum tilvikum hafi sjúkrahús getað metið ástand sjúklings og nauðsyn á sjúkraflutningi innan tímafrestsins.

Unnið er að því að hækka þyngdarmörk sjúklinga í sjúkraflugi

Hver eru hámarksþyngdarmörk sjúklinga í sjúkraflugi?

Hyggst ráðherra gera ráðstafanir til að tryggja að allir íbúar óháð þyngd þeirra komist í sjúkraflug sem þarfnast sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu?

Allir íbúar óháð þyngd geta þegið sjúkraflug með þyrlum. Sem stendur eru sjúkrabörur í flugvélum vottaðar fyrir sjúklinga undir 135 kg. Unnið er að því að hækka þyngdarmörk sjúklinga í sjúkraflugi með þeim búnaði sem nú er um borð í vélunum. Ekki er útilokað að kannaður verði möguleiki á búnaði sem þolir meiri þyngd en leggja þarf mat á það í tengslum við niðurstöðu alþjóðlegra vottunaraðila og áætlaða þörf á slíkum búnaði til framtíðar hérlendis. Jafnframt skal hugað að því í næsta útboði sjúkraflugs hvort ástæða sé til að gera kröfu um stærð og útbúnað flugvélar sem rúmi þyngri sjúklinga, segir í svari ráðherra.

https://eyjar.net/112-sjukraflug-a-milli-lands-og-eyja-i-fyrra/

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.