Sjómannaafsláttur hækkaði nokkuð milli áranna 2008 og 2009 eða um 17,4%, en nú fengu 5720 sjómenn samtals 1297 milljónir í sérstakan skattaafslátt vegna sjómannsstarfa. Ríkisskattstjóri segir, að um meiri hækkun sé að ræða en sést hafi í mörg ár. Líklega skýrist það af svokölluðum strandveiðum sem teknar voru upp á síðasta ári.