Það var mikil gleði og mikið fjör á laugardegi Sjómannadagshelgarinnar. Eins og í fyrra, fóru hátíðahöld laugardagsins fram á og við Vigtartorgið en þessi staðsetning er komin til að vera. Fjölmargt var í boði, m.a. hefðbundin skemmtiatriði eins og kappróður, koddaslagur, karalokahlaup og bátaferðir. Þá var einnig boðið upp á róðrakeppni í landi og keppni í sjómanni.