Breytingar þær sem ríkisstjórnin hefur lagt til að verði á lögum um veiðigjöld hafa mætt mikilli andstöðu. Farin er af stað undirskriftasöfnun þar sem tugþúsundir hafa skráð nöfn sín til að skora á forsetann að samþykkja ekki nýju lögin. Fari svo er eins víst að engin veiðigjöld verði lögð á útgerðina á næsta ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við sjávarútvegsráðherra í blaðinu í dag.