Skoðunarferðir sem veita innsýn inn í stórbrotna sögu Berlínar
Eyjakonan Margrét Rós Harðardóttir, dóttir Harðar Adolfssonar (Harðar á Skútanum) og Nönnu Maríu Guðmundsdóttur hefur um árabil búið í Berlín í �?ýskalandi eftir að hafa kynnst manni sínum þar í landi á námsárunum. Margrét útskrifaðist úr Barnaskóla Vestmannaeyja árið 1995 en þaðan lá leiðin í Flensborg og síðan Fjölbraut í Breiðholti. Eftir það lagði Margrét stund á myndlist og er hún menntaður myndlistarmaður frá Listaháskóla Íslands og Hochschule der Künste í Bremen í �?ýskalandi. Í leit að skemmtilegu og krefjandi verkefni á meðan börnin voru á leikskóla ákvað Margrét að stofna leiðsögufyrirtæki ásamt vinkonu sinni Katrínu Árnadóttur. �?r varð fyrirtækið Berlínur sem hefur vaxið og dafnað undanfarin ár en níu manns starfa hjá fyrirtækinu í dag. Blaðamaður ræddi við Margréti á dögunum.
Berlín mitt á milli fjölskyldna þeirra á Íslandi og í Suður-�?ýskalandi
Hvenær og af hverju ákvaðstu að flytja til Berlínar? �??�?g þvældist mikið um �?ýskaland meðan á námi mínu stóð og kynntist síðan manninum mínum í Bremen. Við fluttum saman til Íslands og vorum þar um tíma en fluttum síðan aftur til �?ýskalands og varð þá Berlín fyrir valinu sem framtíðarheimili,�?� segir Margrét en ástæðan fyrir því var fyrst og fremst sú að hægt var að fljúga beint til borgarinnar sem er sömuleiðis mitt á milli fjölskyldna þeirra á Íslandi og í Suður-�?ýskalandi. �??�?að er gott að búa í Berlín og við höfum meðvitað kosið okkur þann lífstíl sem við lifum nú. Við eigum ekki bíl, reynum að lifa umhverfisvænna lífi, búum í hverfi sem er einstaklega barnvænt, hjólum og löbbum eiginlega allt og reynum að �??neyta�?? minna og �??njóta�?? meira. �?ess fyrir utan er Berlín borg sem hefur upp á svo ótalmargt að bjóða.�??
Fannst liggja beint við að fara út í leiðsögn
En hvernig kom það til að byrja með Berlínur? �??�?egar ég flutti út var ég með hugmyndir um að stofna einhverskonar leiðsögufyrirtæki og þess vegna kynnti ég mér Berlín allt öðruvísi en ég hef kynnt mér aðrar borgir sem ég hef búið í hingað til. �?að kom svo að því að ég kynntist Katrínu Árnadóttur, sem svo stofnaði Berlínur með mér, í kaffisamsæti íslenskra mæðra í Berlín. �?á komumst við að því að við vorum báðar að leita okkur að einhverju skemmtilegu og krefjandi að gera þegar börnin færu á leikskóla og vorum með svipaðar hugmyndir. Eins og flestir sem hafa búið í útlöndum höfðum við oft fengið vini og vandamenn í heimsókn og því alvanar að leiðsegja gestum um borgina og komnar með góða yfirsýn yfir borgina og sögu hennar. Okkur fannst því liggja beint við að setja ferðirnar á blað, bæta við upplýsingum og fara dýpra í söguna. �?að er líka svo gaman að vera með fólki í fríi í borginni okkar og kynna því fyrir henni. Berlín hefur svo ótrúlega fjölbreytta og merkilega sögu að það er endalaust hægt að bæta við nýjum vinklum og sögum,�?? segir Margrét.
�?rír Vestmannaeyingar starfað fyrir Berlínur
Eigendur Berlína eru þrír talsins en auk þeirra eru sex starfsmenn sem vinna sem leiðsögumenn í skoðunarferðum. �?að eru t.d. tvær Berlínur frá Vestmannaeyjum, ég og hún Hlín �?lafsdóttir. Við vorum þrjár en hún Vigdís Sigurðardóttir var að vinna fyrir okkur áður en að hún flutti aftur til Vestmannaeyja. Einnig höfum við verið að sinna túlka- og þýðingarþjónustu og þá höfum við ráðið fólk í þau störf sem hér býr og starfar.�??
Fjölmargt í boði
Upphaflega var fyrirtækið stofnað sem leiðsögufyrirtæki fyrir Íslendinga sem heimsækja Berlín. Í boði eru fjölmargar mismunandi ferðir sem hver hefur sína sérstöðu. �??Við bjóðum upp á nokkrar skoðunarferðir eins og múrtúr, hjólreiðaferð, múltíkúltíferð og þriðjaríkisferð. Einnig bjóðum við uppá rútuferð og ratleik. Starfssvið okkar hefur síðan aldeilis vaxið því smám saman fórum við að fá óskir um ýmis önnur störf frá Íslendingum sem vantaði aðstoð frá einhverjum sem væri í Berlín og þekkti borgina. Við höfum til að mynda skipulagt kóraferðir, hótelskoðunarferðir fyrir hótelstjóra og dæmigerðar árshátíðarferðir. Síðasta árið höfum við einnig verið í samstarfi við fyrirtækið Leikur að læra sem stendur fyrir endurmenntunarferðum kennara til annarra landa. Við aðstoðum þau við að finna spennandi skóla- og leikskólaheimsóknir og annað sem svona ferðum tengist. Við erum alltaf að bæta við okkur verkefnum sem er virkilega skemmtilegt og gefandi því maður kynnist borginni Berlín frá svo ótrúlega mismunandi sjónarhornum í gegnum þessa vinnu.�??
Sífellt að bæta við ferðum
Aðspurð hvort það hafi verið mikil aukning í aðsókn milli ára svarar Margrét því játandi. �??�?að hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur. Í upphafi vorum við bara tvær sem sinntum öllum störfum en erum í dag níu. �?að fjölgar alltaf ferðum hjá okkur og síðan eru þessi nýju verkefni sem við erum farin að sinna. Svo virðist sem orðspor okkar hafi farið víða þó við höfum aldrei auglýst okkur. �?að þýðir bara að ánægðir viðskiptavinir mæla með okkur við vini og vandamenn og þannig hefur snjóboltinn rúllað og hann virðist satt að segja enn vera á fleygiferð!�??
Hvenær er vinsælasti tíminn hjá Íslendingum að heimsækja Berlín? �??�?að virðist eins og vorin og haustin séu tíminn sem flestir koma. Mér finnst samt eins og tímabilið sé að lengjast. �?annig að nú í lok nóvember erum við enn með margar ferðir í hverri viku. Hér í upphafi voru vetrarmánuðirnir mun rólegri. Nú er Icelandair nýbyrjað að fljúga til Berlínar og þá má búast við að mun fleiri Íslendingar en áður sæki Berlín heim og þar af leiðandi sæki þjónustu til okkar,�?? segir Margrét.
Tilvalið að heimsækja Berlín í aðdraganda jólanna
Nú þegar jólin eru að nálgast er ekki ótrúlegt að einhverjir séu að íhuga það að fara í stutta borgarferð, einhverjir til að versla og aðrir bara til að njóta og komast í jólaskapið. Myndir þú mæla með Berlín og jafnvel leiðangri með Berlínum fyrir þetta fólk? �??Jólin í Berlín eru yndislegur tími. Berlín fer algjörlega í jólagírinn. Hér er mikið skreytt, þá á opinberum svæðum, minna í heimahúsum, og að vissu leyti algjört jólabrjálæði. �?að sem er svo einkennandi við Berlín á aðventunni eru allir jólamarkaðirnir. �?að eru tugir jólamarkaða út um alla borg þar sem hægt er að kaupa alls kyns matvæli til að borða á staðnum eða taka með, jólaskraut og ýmiss konar gjafir og síðast en ekki síst �??Glühwein�?� sem er jólaglögg, drukkið heitt.�??
�??Á jólamörkuðunum eru líka oft sett upp tívolítæki fyrir börnin svo þetta er svona það sem berlínskar fjölskyldur gera saman á aðventunni. Eins eru oft þematengdir jólamarkaðir, þó þeir hefðbundnu þýsku séu auðvitað mest áberandi. En það eru hér t.d. danskir og sænskir jólamarkaðir, hönnunarmarkaðir og jafnvel japanskir jólamarkaðir. �?að væri hægt að fara á nýjan jólamarkað á hverjum degi aðventunnar ef áhugi væri fyrir því. Einnig fara margar fjölskyldur og vinahópar á einhvern hefðbundinn þýskan veitingastað og gæða sér saman á jólamat. �?á eru öndin og gæsin vinsælust með öllu tilheyrandi og hiklaust hægt að mæla með svoleiðis máltíð,�?? segir Margrét og heldur áfram.
�??Að sjálfsögðu mælum við með að allir Íslendingar sem heimsækja Berlín komi í skoðunarferð með Berlínum. �?að er auðvitað ótrúlega gaman að vera í borginni og fara að versla og njóta góðra veitingahúsa og öldurhúsa en það er eiginlega synd að kynna sér ekki alla vega einhvern hluta af þeirri stórbrotnu sögu sem Berlín hefur upp á að bjóða. �?að eru fáar borgir sem hafa gengið í gegnum jafn miklar öfgar og hremmingar í sögulegu samhengi og Berlín. Að fara í skoðunarferð með Berlínum mun gefa fólki aðeins betri innsýn í það af hverju Berlín er eins og hún er í dag, því auðvitað spilar sagan gríðarlegt hlutverk í því hvernig borgin hefur þróast.�??
Að endingu bendir Margrét á heimasíðu Berlína en þar er ýmsan fróðleik að finna. �??Annað sem við Berlínur höfum gert er að taka saman alls konar vitneskju triks og tips og setja þau á heimasíðuna okkar (Berlinur.de) í formi bloggs og undir liðnum gagnlegt. �?ar erum við með veitingastaðalista sem gott er að styðjast við, það er fátt sorglegra en að fara út að borða í þessari borg og lenda í því að fá vondan mat. �?ar eru líka hugmyndir hvað sé skemmtilegt að gera hverju sinni, hvort sem ferðin er um jól, sumar eða í rigningu.�??

Nýjustu fréttir

Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.