Samgönguvandinn sem skapast með verkfalli á Herjólfi kemur víða fram, ekki eingöngu í vöruflutningum til og frá Eyjum. ÍBV-íþróttafélag finnur fyrir því að engar ferðir eru um helgar og aðeins ein ferð á virkum dögum. Ekki eingöngu þarf að skipuleggja ferðir vandlega, heldur verða ferðirnar mun dýrari þar sem heilu flokkarnir þurfa jafnvel að gista í tvær til þrjár nætur í stað einnar áður. �??�?etta er búið að vera alveg ótrúlega flókið púsluspil,�?? sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags. �??Fjórði og fimmti flokkur í fótbolta hættu við ferðir til Reykjavíkur um helgina en eldra ár fjórða flokks karla í handbolta fór í morgun. �?eir eiga leik klukkan 18:30 á morgun, laugardag en þurftu að fara frá Eyjum klukkan 8:30 í morgun. �?að var ekki hægt að fresta þessum leik því þeir eru að fara að spila við Hörð frá Ísafirði. �?að er ekki bara óþægindin sem fylgja skertum samgöngum heldur er ferðin mun dýrari, bæði fyrir félagið og foreldra.�??
�?að eru ekki bara börnin sem þetta bitnar á, því karlalið ÍBV í knattspyrnu spilar um helgina á Akranesi gegn Víkingi �?lafsvík. �??�?eir fóru með Herjólfi í morgun og þurfa að vera í bænum fram á mánudag. Eins og þetta hefur verið undanfarna daga, þá væri óskandi að geta einbeitt sér að því að reka íþróttafélagi en ekki að eyða öllum tímanum í ferðaskipulagningar, því við gerum lítið annað þessa dagana,�?? sagði Dóra Björk.
Koma heim 48 klukkutímum eftir að Samfestingi lýkur
75 unglingar frá Vestmannaeyjum eru nú stödd í höfuðborginni að taka þátt í Samfestingi, hátíðar Samtaka félagsmiðstöðva. Hátíðin fer fram í Laugardalshöll og hefst í dag en lýkur klukkan 16:00 á morgun. Eyjahópurinn verður hins vegar ekki kominn heim fyrr en tveimur sólarhringum síðar eða um miðjan dag á mánudag. �??Við leggjum ekki þann mikla kostnað á foreldra að fljúga, þannig að við treystum á sjósamgöngur. Við vorum að vonast til þess að komast í Landeyjahöfn með Víkingi á sunnudag en samkvæmt ölduspá er ólíklegt að það gangi eftir. �?að þýðir að við komum heim tveimur sólarhringum eftir að Samfestingi lýkur,�?? sagði Sigþóra Guðmundsdóttir, forstöðumaður Rauðagerðis félagsmiðstöðvar.