Þrír ungir drengir voru að leika sér í klöppunum norðaustan megin á Stafnesi. Þeir voru að hlaupa undan öldunum á sleipum klöppunum þarna. Tvær ungar stúlkur koma þarna að rétt áður en þetta skeði, sáu drengina en voru ekkert að fylgjast sérstaklega með þeim. Slys varð með þeim hætti að allt í einu kom stærri alda en þeir áttu von á. Aldan hreif með sér Sigurð Helga og og Inga Þór. Sigurður Helgi barst frá landi en næsta alda bar Inga Þór að klettasnös sem hann gat haldið sér í og tókst að krafla sig í land.