Slysum á sjómönnum fækkaði verulega í fyrra
19. janúar, 2024

Umtalsverð fækkun varð í fyrra frá árinu þar á undan á slysum á sjómönnum sem sjúkratryggingar tilkynntu til siglingasviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Þetta kemur fram ný sérblaði Fiskifrétta um öryggi í sjávarútvegi.

„Við getum þó ekki lesið neitt í það fyrr en við fáum tölur ársins í ár um hvort það sé orðinn varanlegur marktækur munur,“ segir Jón Pétursson, rannsóknarstjóri siglingasviðsins.

Margra grasa kennir í nýju sérblaði Fiskifrétta um öryggi í sjávarútvegi.
Margra grasa kennir í nýju sérblaði Fiskifrétta um öryggi í sjávarútvegi.
Markmiðið með starfi rannsóknarnefndarinnar er að auka og efla öryggi til sjós. Aðspurður segir Jón að samstarf nefndarinnar við sjómenn og útgerðir gangi án undantekninga mjög vel.

Allir leggjast á árar
„Hagaðilar, sem eru útgerðarmenn og sjómenn, leggjast undantekningarlaust á árar með okkur. Það kemur aldrei fyrir annað en það að útgerðir afhenda okkur allar þær upplýsingar og öll þau gögn sem við þurfum á að halda,“ segir Jón. Það sama gildi um sjómenn.

„Sjómenn eru fúsir til að mæta í viðtöl ef þeir eru boðaðir. Það er afar sjaldgæft að menn sinni ekki þessari lögbundnu skyldu sinni,“ segir Jón. Allir átti sig á að skilvirkar rannsóknir á þessu sviði séu allra hagur.

„Um þetta er náttúrlega fjallað í lögunum um rannsóknarnefnd samgönguslysa. Þar segir að það sé okkar hlutverk að fækka slysum og auka öryggi með því að efla og bæta slysarannsóknir. Það lýsir mjög vel því sem við erum að gera,“ segir Pétur.

Færri slys allra hagur
Jón, sem hefur verið hjá rannsóknarnefndinni í tvö ár, var sjálfur til sjós frá sextán ára aldri í þrjá áratugi og þekkir því vel til viðfangsefnisins. Hann er spurður hvort viðhorfið til öryggismála hafi breyst milli kynslóða.

Sjómenn taka þátt í reglulegum björgunaræfingum. FF Mynd/Þorgeir Baldursson
Sjómenn taka þátt í reglulegum björgunaræfingum. FF Mynd/Þorgeir Baldursson
„Það er ekki nokkur spurning að það eru breytt viðhorf,“ svarar Jón. „Þá er ég ekki endilega að segja að það sé eingöngu vegna kynslóðaskipta, það hafa bara orðið breytingar í viðhorfum. Til að mynda hjá útgerðum vegna þess að þegar menn finna áþreifanlega fyrir hagræðinu af því að fækka slysum þá verður viðhorfsbreyting. Það er allra hagur að fækka slysum.“

Tala beint við sjómenn og útgerðir
Að sögn Jóns er hægt að vinna eftir tveimur aðferðum til að ná fram breytingum í öryggisátt. Annars vegar sé um að ræða svokallaða „Bottom up“ aðferð eða „Top down“. Fyrrnefnda aðferðin byggi á að vera í sambandi og samráði við þá sem starfa í greininni og koma til þeirra ábendingum og tillögum í öryggisátt. Þar sé fyrst og fremst um að ræða sjómennina og jafnvel útgerðirnar.

„Það er yfirleitt mjög auðvelt að fá slíkum tillögum framgengt. En þegar þú ert að vinna „Top down“, það er að segja að þú gerir tillögu til ráðuneytis og stofnana, þá tekur það miklu lengri tíma, það er ekki eins skilvirkt,“ útskýrirJón. Skýringin liggi í miklum samskiptum milli íslenskra sjómanna.

Frumkvæði frá sjómönnnum
„Þar sem þetta er lítið land og menn þekkja mikið til þá hefur gengið vel að koma á breytingum með því að eiga samtalið við sjómennina sjálfa,“ segir Jón sem kveður unnið eftir báðum aðferðunum.

„En það hefur gefist afar vel að vinna þessa leið af því að það er mikið samtal milli sjómannanna sjálfra og þeir eiga mjög oft frumkvæðið að bestu lausnunum. Og við höfum alltaf hlustað á það sem þeir hafa fram að færa. Við vitum um mörg dæmi þess að þegar menn hafa breytt hjá sér verklagi eða útbúnaði þá hafa sjómennirnir sjálfir rætt það sín á milli hvað hafi verið gert og það breiðist út,“ segir rannsóknarstjórinn.

Tvö banaslys í fyrra
Þótt viðhorfið til öryggismálanna sé gott og margvíslegar úrbætur hafi verið gerðar er verkefninu aldrei lokið.

„Við erum alltaf eitthvað að kljást við sömu hlutina. Það er alltaf sama gamla tuggan; þú átt að nota öryggishjálm og vera í öryggislínu. Það eru þess háttar hlutir en þetta hefur stór, stór lagast,“ svarar Jón spurður um þá þætti sem enn þarf að taka betur á.

Tvö banaslys sem urðu í fyrra eru á borði rannsóknarnefndarinnar. Þar er annars vegar um að ræða slys þar sem maður lést er kviknaði í fiskiskipi við bryggju og hins vegar mann sem drukknaði á skemmtibáti úti í Helguvík, rétt fyrir utan Njarðvík. Niðurstöður rannsóknar á fyrra slysinu liggja nú fyrir. Einnig má nefna strand flutningaskipsins Wilson Skaw undan Ennishöfða í Húnaflóa í apríl.

Íslenskir sjómenn vel þjálfaðir
Hvað varðar almennt öryggi til sjós segir Jón að það sé skylda að halda björgunaræfingar um borð í skipum einu sinni í mánuði.

„Það er skráð niður og svo er farið yfir það hvort þessir hlutir séu í lagi við árlega skipaskoðun. Og nú eru allir sjómenn búnir að fara í gegnum slysavarnaskóla og mjög stór hluti sjómanna er að auki búinn að fara í gegnum endurmenntun. Þannig að íslenskir sjómenn eru býsna vel þjálfaðir í öryggi.“

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 3 Tbl 25
3. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Vsv Logo Blue Vsv
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst