Spenn­ir­inn laskaður í tíu ár
All­ar sex dísel­vél­ar HS veitna í Vest­manna­eyj­um voru ræst­ar í gær­kvöldi þegar straum­laust varð. �?ar með er hægt að veita heim­il­um raf­magn en til að mynda var slökkt á götu­ljós­um í Vest­manna­eyj­um í nótt til að spara raf­magn.
Kostnaðarsamt er að veita raf­magn á þenn­an hátt og mun Landsnet bera þann kostnað, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá HS veit­um. Vél­arn­ar eru ekki nógu öfl­ug­ar til að veita raf­magn til fryst­ing­ar og því hef­ur starf­semi að mestu legið niður hjá Ísfé­lag­inu og Vinnslu­stöðinni í dag.
�?etta er ekki í fyrsta skipti sem bil­un kem­ur upp í þess­um til­tekna spenni Landsnets í Rima­koti á Land­eyjasandi. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá HS veit­um hef­ur hann verið laskaður í tíu ár og ekki getað starfað á full­um af­köst­um og eru starfs­menn síður en svo ánægðir með stöðu mála.
Mbl.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.