Staðan er óbreytt frá því í gær

Enn eru fjórir í einangrun og 78 í sóttkví. Einn hefur lokið sóttkví.

Í gær fór fram skimun á vegum Íslenskrar erfðagreiningar til að kanna útbreiðslu veirunnar í Vestmannaeyjum. Voru tekin sýni hjá tæplega 500 einstaklingum. Niðurstöður munu liggja fyrir á morgun.

Vestmannaeyjadeild Rauða krossins hefur óskað eftir því að aðgerðastjórn komi því á framfæri að hjálparsími Rauða krossins er 1717 og netspjallið má finna á 1717.is. Hægt er að hafa samband á öllum tímum sólarhringsins og koma skilaboðum til fulltrúa Rauða krossins í Vestmannaeyjum sé þess þörf.

Apótekarinn í Vestmannaeyjum bíður upp á heimsendingu á lyfjum þar til létt hefur verið á takmörkunum. Krónan í Vestmanneyjum bíður einnig upp á heimsendingu á vörum en þeir sem þurfa á slíkri þjónustu að halda er bent á að senda tölvupóst á netfangið: vestmannaeyjar@kronan.is.

F.h. aðgerðastjórnar,
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.

Nýjustu fréttir

Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.