Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélagsins í Vestmannaeyjum sem haldinn var í gærkvöldi var sú tillaga felld að stillt yrði á lista fyrir komadi sveitastjórnakosningar en það þarf 2/3 hluta atkvæða með tillögu um uppstillingu samkvæmt skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins. �?að lítur því allt út fyrir að fari verði í prófkjör fyrir komandi bæjarstjórakosningar. Á framboðslista skulu vera að minnsta kosti jafnmörg nöfn frambjóðenda og kjósa á sem aðalmenn í viðkomandi sveitarstjórn og aldrei fleiri en tvöföld sú tala. Síðast var prófkjör í Vestmananeyjum 1990.