Stefnt er að því að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar síðdegis í kvöld, miðvikudag. Eins og staðan er nú í og við höfnina, þarf að haga siglingum þangað eftir flóðatöflu og því breytist áætlun skipsins. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 19:00 og 21:00 en frá Landeyjahöfn klukkan 20:00 og 22:00. Ölduhæð nú er innan mark, 2,1 metri eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskip.