Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri Eimskip innanlands sagði í samtali við Fréttir að hann sæi ekki neitt því til fyrirstöðu að bæta fjórðu ferðinni inn í vetraráætlun Herjólfs, frá 1. október til 30. apríl.
„Það er reyndar ekki Eimskip sem ákveður það heldur Vegagerðin, sem aftur heyrir undir samgönguráðuneytið. Allir aðilar sem að þessu koma munu funda í vikulok þar sem ákvörðun verður vonandi tekin varðandi þetta mál.“