Stóð aldrei til að vera með eitthvert sultulið
Nýliðar Eyjamanna í Olís-deild karla í handbolta hafa kannski ekki komið neitt sérstaklega á óvart enda var liðinu spáð ágætu gengi. �?eir hafa þó staðið undir þeim væntingum sem til liðsins voru gerðar en miklu var til tjaldað þar á bæ fyrir tímabilið.
ÍBV fer í jólafríið í 3. sæti og getur í raun hafið 12. umferðina í 2. sæti deildarinnar vinni það Akureyri í fyrsta leik eftir EM-hléið.
Eyjamenn unnu síðasta leik deildarinnar fyrir jól á sunnudaginn þegar þeir lögðu FH í Kaplakrika, 27:22, en þar átti Andri Heimir Friðriksson, rétthent skytta ÍBV, flottan leik. Hann skoraði sjö mörk og var einnig mjög öflugur í vörninni og er leikmaður 11. umferðar hjá Morgunblaðinu fyrir sína frammistöðu.
ÍBV mætti í Kaplakrikann án Róberts Arons Hosterts sem hefur verið meiddur undanfarnar vikur. �?á losaði liðið sig við báða erlendu leikmennina á dögunum þannig að nú reynir á breiddina. Skyttan Filip Scepanovic var reyndar með ÍBV á sunnudaginn í sínum síðasta leik fyrir félagið. �?rátt fyrir að menn séu að heltast úr lestinni er Andri brattur.
�??�?etta er núna eiginlega sama lið og við komum okkur upp í úrvalsdeildina á. �?etta eru strákar sem hafa spilað lengi saman og kunna handbolta. Liðið er alveg sterkt þó það detti einhver út. Við erum búnir að spila lengi saman og kunnum vel hver á annan,�?? segir Andri Heimir.
Viðtalið má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.