Ein allra vinsælast hljómsveit Íslands, Sálin hans Jóns míns verður með stórdansleik í Höllinni á morgun, laugardag. Sálin hefur alla tíð átt stóran aðdáendahóp í Vestmannaeyjum og sem dæmi stóðu Eyjamenn að stofnun aðdáendaklúbbs sveitarinnar á sínum tíma. Sálverjar hafa einnig haldið tryggð við Eyjarnar, komið reglulega hingað og haldið böll.