ÍBV er úr leik í Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu eftir tap gegn Víking Reykjavík á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag í átta liða úrslitum bikarkeppninnar ÍBV voru í hálfleik að vinna með tveimur mörkum en það var Guðmundur Magnússon sem kom Eyjamönnum yfir strax á 13. mínútu með laglegu skoti úr teignum. Guðmundur var aftur á ferðinni á 32. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu.
Sölvi Geir Ottesen minnkaði muninn fyrir Víkinga á 57. mínútu og Nikolaj Hansen jafnaði metin á 80. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Það var svo Erlingur Agnarsson sem skaut Víkingum í undanúrslit með marki á 84. mínútu og kom þeim þar með í undanúrslit.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.