Innisundlaugin opnar aftur í dag klukkan 15:00 eftir langa lokun vegna viðhalds. Lauginni var lokað þann 20. október og eru þetta því orðnir rúmlega fimm mánuðir. Af tilefni af opnuninni verður gestum boðið upp á kaffi og köku og eru allir hvattir til að mæta og fagna enduropnuninni, segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.
Lokunin hefur haft töluverð áhrif á sundkennslu yngstu nemenda í Grunnskóla Vestmannaeyja, en nemendur í 1.–4. bekk hafa misst niður fjölda kennslustunda. Nú stendur til að bregðast við með aukasundi og sérstökum sundnámskeiðum til að tryggja að lágmarkskröfur náist.
