Svabbi með gosmyndirnar í Einarsstofu á laugardaginn
29. nóvember, 2019
Með Svavari á myndinni er afadóttirin Kamilla Dröfn

Svavar Steingrímsson, Svabbi Steingríms er einn þriggja sem sýnir myndir í Einarsstofu á laugardaginn sem er tólfta sýningin í röðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt.  Eru þetta myndir sem hann tók í gosinu 1973. Áhrifamiklar myndir en hluta þeirra sýndi hann í Svölukoti á goslokum í sumar.

Óskar Svavarsson, Sigurlás Þorleifsson og Halla Svavarsdóttir, tekin páskana 1973

„Þetta er myndir sem ég tók á hlaupum,“ segir Svabbi sem byrjaði snemma að taka myndir en það átti ekki fyrir honum að liggja að leggja fyrir sig ljósmyndun og kvikmyndagerð eins og Páll bróðir hans. „Það var til kassavél heima sem mamma og pabbi áttu og fengum við strákarnir að nota hana eins og við vildum. Það varð þó ekkert framhald af þessu hjá mér. Það var ekki fyrr en í fyrstu utanlandsferðinni að ég keypti myndavél, Olympus sem var mjög góð vél og seinna eignaðist ég Minoltavél sem reyndist vel í gosinu.“

Fyrstu myndirnar í gosinu tók Svavar gosnóttina þegar hann aðstoðaði við að bjarga búslóðinni á Oddsstöðum sem var eitt af húsunum sem stóð næst gossprungunni. Næstu dagar fóru í búslóðaflutninga og vinnu uppi á landi. Þegar í ljós kom að það vantaði pípara til Eyja dreif hann sig út með Þorleifi Sigurlássyni, samstarfsmanni í pípulögnunum og stóð svo vaktina allt gosið. Hann segist ekki hafa viljað fyrir nokkurn peninga missa af gosinu þó rótið væri mikið og fjölskyldan búið við þröngan kost í Ölfusborgum.

Myndavélin entist gosið

„Ég átti tvær vélar en lagði annarri eftir fyrstu nóttina og notaði hina, Minoltavél sem reyndist mér vel en endtist gosið og svo ekki söguna meir. Allt eru þetta „slightsmyndir“ og teknar á öllum stigum gossins. Sindri er búinn að hreinsa þær og laga og er það mjög vel gert. Er allt annað sjá myndirnar. Þarna eru líka nokkrar loftmyndir sem ég tók þegar ég fékk að fljóta með Lofti Harðarsyni, flugmanni sem átti flugvél á þessum tíma,“ sagði Svavar.

Þrátt fyrir að vera kominn á níræðisaldurinn fer Svabbi ennþá á Heimaklett  þó eitthvað hafi ferðunum fækkað. „Þær eru orðna 87 ferðirnar það sem af er þessu ári. Ég er að taka myndir á Heimakletti. Er með litla Canonvél með einhverjum stöfum sem hefur reynst mér vel. Þær verða ekki á sýningunni en þeir sem séð hafa gosmyndirnar mínar eru ánægðir. Vona að það sama verði hjá þeim sem mæta í Einarsstofu kl. 13.00 á laugardaginn,“ sagði Svabbi að endingu.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.