Veðurskeytastöð 815 á Stórhöfða í Vestmannaeyjum verður lögð niður í vor og hinn 1. maí tekur sjálfvirkur tæknibúnaður alfarið við. Þetta er gert í hagræðingarskyni en er einnig í takt við tímann því veðurathugunarmönnum fer smátt og smátt fækkandi – þótt starfsstéttin sé ekki alveg útdauð enn.