Útgerðar- og fjölskyldusaga Þóru og Óskars á Leó

Í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2021 er farið yfir sögu útgerðar Óskars Matthíassonar sem oftast var kenndur við Leó VE 400. Óskar hefði hefði orðið 100 ára á sama ár. Nú er þessari sögu, sem hófst 1946 lokið með sölu á Þórunni Sveinsdóttur VE, því mikla afla- og happaskipi til Fáskúrsfjarðar. Fjölskyldan undir forystu Sigurjóns Óskarssonar, skipstjóra […]
ÍBV vann Val í æfingaleik

Karlalið ÍBV í fótbolta lagði Val að velli fyrr í dag í æfingaleik í Egilshöll. Leiknum lauk með 2-1 sigri ÍBV. Valur leiddi með einu marki í hálfleik með marki frá Degi Erni Garðarssyni. Eyjamenn skoruðu tvö mörk í síðari hálfleik. Mörk ÍBV skoruðu Bjarki Björn Gunnarsson og Mathias Edeland. Stutt er í að Besta […]
Þögn bæjarfulltrúa vekur spurningar

Í morgun birtu Eyjafréttir svör bæjarfulltrúa um umdeilt útboð Vestmannaeyjabæjar vegna reksturs heilsuræktar í Íþróttamiðstöðinni. Fjórir af níu bæjarfulltrúum sáu þó ástæðu til að senda svar til fjölmiðilsins. Þrír af þeim fjórum vísuðu einfaldlega á ráðgjafafyrirtækið Consensa. Það fyrirtæki hefur hins vegar haft fyrirspurnir Eyjafrétta til meðferðar í fleiri vikur án þess að svara þeim. […]
Herjólfur breytir áætlun á morgun

Vegna slæmrar veðurspár á morgun hefur Herjólfur ohf. ákveðið að breyta siglingaáætlun sinni. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun þar sem búast má við hvössum suðaustanáttum, mikilli úrkomu og erfiðum akstursskilyrðum. Veðurstofa Íslands spáir suðaustan 20–28 m/s með vindhviðum staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og […]
Fundur bæjarstjórnar í beinni

Í dag klukkan 14:00, fer 1625. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja fram í Ráðhúsinu og verður fundinum streymt í beinni útsendingu hér að neðan. Á dagskrá er meðal annars ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025, sem nú fer til seinni umræðu, auk áframhaldandi umræðu um samgöngumál í Eyjum. Þá verður einnig fjallað um menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar og undirbúning sveitarstjórnarkosninga […]
Appelsínugul viðvörun: Suðaustan rok og stórhríð

Klukkan 5 í fyrramálið tekur gildi gul viðvörun á landinu öllu. Því til viðbótar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun á vegna veðurs á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Miðhálendi. Á Suðurlandi tekur sú appelsínugula gildi klukkan 7.00 í fyrramálið og gildir hún til kl. 13.00. Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig […]
Aðalfundur krabbavarnar í gær

Aðalfundur Krabbavarnar í Vestmannaeyjum fór fram í gær þar sem farið var yfir starfsemi félagsins og horft til komandi verkefna. Stjórn félagsins stendur að mestu óbreytt frá fyrra ári. Ein breyting varð þó á stjórninni þegar Kristín Valtýsdóttir lét af störfum eftir tíu ára setu. Var henni þakkað sérstaklega fyrir sitt framlag og mikilvægt starf […]
Vestmannaeyjar skila milljörðum – en fá hvað í staðinn?

Það er ákveðin þreyta farin að setjast í umræðuna í Vestmannaeyjum. Ekki vegna þess að við höfum sagt of mikið, heldur vegna þess að við þurfum sífellt að minna á það sama. Við þurfum að minna á að samgöngur eru ekki lúxus. Við þurfum að minna á að innviðir eru ekki aukaatriði. Og við þurfum, […]
Íþróttamaður mánaðarins – Haukur Leó

Haukur Leó Magnússon er íþróttamaður mánaðarins. Haukur Leó er leikmaður 3. flokks og meistaraflokks karla í handbolta. Hann varð á dögunum Powerade bikarmeistari með 3. flokki eftir sigur á Val í úrslitaleik. Haukur er fyrirliði 3. flokks karla. Aldur? 18 ára Fjölskylduhagir? Harpa Hauks er mamma mín, Magnús Elíasson er pabbi minn og síðan á ég tvö systkini, þau heita Lena María og Tómas Bent. Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi? Vakna um 09:00 fæ mér morgunmat og fer í skólann. Eftir skóla fer ég að lyfta, fæ ég mér að borða og síðan á handboltaæfingu. Á eftir fer ég eiginlega alltaf í gufu og pottana og heim að borða. Kannski að læra eða fara í tölvuna. Aðal áhugamál fyrir utan íþróttir? Það er að fara að veiða. Síðasta hámhorfið? Breaking Bad. Hver er þín helsta fyrirmynd í íþróttum? Guðjón Valur Sigurðsson Mottó? Lífið er núna. Hvert stefnir þú handboltanum? Er það ekki bara atvinnumennskan. Hvað hefur staðið upp úr á tímabilinu hingað til? Að hafa fengið svona stórt verkefni í meistaraflokki og auðvitað að verða bikarmeistari með 3. flokki Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með á eyðieyju og af hverju? Ég myndi taka Leó Snæ, Andra Magg og Jason. Ég myndi taka þessa með því ég held við myndum ná að lifa af á eyjunni. Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Ég bjó í Serbíu þegar ég var yngri og talaði serbnesku. Hefur þú stundað aðrar íþróttir en handbolta? Já, ég æfði fótbolta og fimleika þegar ég var yngri og karate þegar ég átti heima í Serbíu. Hvað einkennir 3. flokk karla í handbolta? Dugnaður, samstaða og stemning. Hvernig var tilfinningin að vera Powerade bikarmeistari? Veit ekki alveg hvernig á að lýsa tilfinningunni, en það var geggjað. Hvaða ráð myndir þú gefa yngri iðkendum í íþróttum? Haltu áfram að æfa, reyna að vera í eins mörgum íþróttum eins lengi og þú getur og auðvitað borða nóg og sofa vel. Hvað er velgengni fyrir þér? Velgengni fyrir mér er bara að sjá framfarir bæði í gyminu og á æfingum. Eitthvað að lokum? Áfram ÍBV (meira…)
Bæjarfulltrúar tjá sig ekki um útboð heilsuræktar

Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum hafa ekki tekið efnislega afstöðu til spurninga Eyjafrétta um útboð sveitarfélagsins vegna reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Minnihlutafulltrúi gagnrýnir hins vegar að útboðsskilyrði hafi ekki verið lögð fyrir bæjarráð áður en útboðið var auglýst og segir hæfiskröfur útiloka marga mögulega bjóðendur. Vísa til þess að útboð sé í gangi Þrír bæjarfulltrúar sem […]