Appelsínugul viðvörun: Suðaustan rok og stórhríð
Skjáskot/vedur.is

Klukkan 5 í fyrramálið tekur gildi gul viðvörun á landinu öllu. Því til viðbótar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun á vegna veðurs á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Miðhálendi.

Á Suðurlandi tekur sú appelsínugula gildi klukkan 7.00 í fyrramálið og gildir hún til kl. 13.00. Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni, segir í viðvörunarorðum Veðurstofunnar fyrir Suðurland.

Hugleiðingar veðurfræðings

Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina köldu lofti yfir landið í dag, fremur hægur vindur víðast hvar en austantil má þó búast við norðvestan strekkingi eða allhvössum vindi. Kalda loftinu fylgja dálítil él norðanlands og einnig við vesturströndina þegar líður á daginn, en í öðrum landshlutum verður þurrt og allvíða bjart. Frost yfirleitt 2 til 10 stig, en herðir á frosti í innsveitum í kvöld.

Í nótt kemur djúp lægð inn á Grænlandshaf, skil frá henni ganga norðaustur yfir landið á morgun og valda illviðri í flestum landshlutum.
Það snýst því í vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt, víða 18-28 m/s í fyrramálið og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestanlands, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Eftir hádegi fer veður ört batnandi á Suður- og Vesturlandi í kjölfar skilanna með sunnan strekkingi og slydduéljum, en norðan- og austantil má búast við austan hvassviðri og snjókomu fram á kvöld. Hlýnar smám saman.

Fyrir hádegi á morgun má því búast við sannkallaðri stórhríð á Suður- og Vesturlandi, gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út og ferðalög ekki ráðleg. Eins og fyrr segir mun veður fara ört batnandi á þessum slóðum eftir hádegi, en norðan- og austanlands er líklegt að veðrið valdi samgöngutruflunum fram á kvöld.
Spá gerð: 25.03.2026 06:46. Gildir til: 26.03.2026 00:00.

Nýjustu fréttir

ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.